Atvikið átti sér stað á Spa brautinni í Belgíu. Þær misstu allar stjórn á bílum sínum með sama hætti í Raidillon beygjunni. Einni hröðustu beygju brautarinnar. Það byrjaði að rigna um það leyti sem þær komu að Eau Rouge beygjunni sem er ein sú allra frægasta í heimi. Visser er í bílnum sem kastast upp á dekkjavegginn og endar svo á hlið.
Þær Fabienne Wohlwend, Beitske Visser, Sarah Moore, Abbie Eaton Ayla Agren og Belen Garcia lentu allar í því að missa stjórn á bíl sínum í beygjunni og lentu svo saman efst í brekkunni eins og sjá má á myndbandinu sem fylgir fréttinni.
W-Series er mótaröð sem er einungis ætluð kvenkyns keppendum og er hugsuð sem vettvangur fyrir kappaksturskonur til að fá meira pláss á stóra sviðinu, enda fylgir mótaröðin Formúlu 1 á mörgum brautum.