Eyjólfur Ármannsson leiðir lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi í kosningunum.
Hann er fæddur í Vestmannaeyjum en foreldrar hans eru Guðjón Ármann Eyjólfsson, sjóliðsforingi og skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík til margra ára, og Anika Jóna Ragnarsdóttir, húsmóðir og sjúkraliði. Fjölskyldan flutti frá Eyjum í eldgosinu, þegar Eyjólfur var á fjórða aldursári. Fluttu þau þá til Reykjavíkur þar sem Eyjólfur ólst upp. Eyjólfur hefur ávallt dvalið mikið á Vestfjörðum en móðurfjölskylda Eyjólfs kemur frá Lokinhamradal, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.

Eyjólfur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, nam Evrópurétt við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu er með meistarapróf í lögfræði (LL.M.) frá University of Pennsylvania og nam í hagfræði í Wharton. Hann hefur unnið víða innan stjórnsýslunnar, hjá sýslumanni, fjármálaráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu, Skipulagsstofnun, og var aðstoðarsaksóknari í efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og í lögmennsku. Hann vann frá 2011 hjá norska stórbankanum DNB í Osló og síðar hjá Nordea, stærsta banka Norðurlanda.
Eyjólfur er formaður Orkunnar okkar, samtaka þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum, og einn aðalhöfunda sérfræðingaskýslu samtakana um þriðja orkupakkan og orkustefnu ESB „Áhrif inngöngu Íslands í orkusamband ESB – frá orkusamvinnu til orkusambands”.
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?
Skeggi við Lokinhamradal, Arnarfirði.
Hvað færðu þér í bragðaref?
Fæ mér aldrei bragðaref. Ís í brauðformi.
Uppáhalds bók?
Glæpur og refsing eftir Fyodor Dostoevsky.
Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla)
Evróvisjón Húsavíkurlagið.
Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi)
Reykjavík.
Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi.
Tók í gegn íbúðina. Las bók um svefn, Why we sleep, og þrjár bækur um þarmana Sjarmen med tarmen, Hjernen og tarmen og Sund tarm - klart hode.
Hvað tekur þú í bekk?
Veit ekki, hef aldrei tekið neitt í bekk.
Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat?
Eftir.

Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu)
Starfa sem lögfræðingur.
Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi?
Að hann væri fáviti og stórglæpamaður sem kúgaði og ofsótti þjóð sína og væri einn af illmennum heimsins.
Uppáhalds tónlistarmaður?
Bach og Dua Lipa.
Ein sterkasta minningin úr æsku?
Eldgosið í Eyjum.
Hver er fyrirmynd þín í pólitík?
Alltaf mjög hrifinn af Thomas Jefferson.
Besta íslenska Eurovision-lagið?
Nína.
Besta frí sem þú hefur farið í?
HM í Rússlandi 2018 og fylgja íslenska landsliðinu
Uppáhalds þynnkumatur?
Hamborgari á Hamborgarabúllu Tomma. Klikkaði aldrei.
Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið?
Einu sinni.

Uppáhalds Fóstbræðraatriði?
Indriði og ofninn á ganginum.
Besti fimmaurabrandarinn?
Einu sinni voru Frakki, Pólverji og Íslendingur í Eiffel-turninum í París. Frakki henti niður Croissant. Pólverjinn og Íslendingurinn spurðu af hverju hentirðu niður Croissant? Frakkinn sagði, það er svo mikið af Croissant í Frakklandi. Pólverjinn henti niður pylsu. Frakkinn og Íslendingurinn spurðu, af hverju hentirðu niður pylsunni? Póljverjinn svaraði það er svo mikið af pylsum í Póllandi. Íslendingurinn henti niður Pólverjanum. Frakkinn spurði, af hverju hentirðu niður Pólverjanum. Íslendingurinn svaraði, það er svo mikið af Pólverjum á Íslandi. (Var tekinn úr brandarkeppni í Vatnaskógi í sumar.).
Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum?
Að hafa farið til Bandaríkjanna sem skiptinemi.
Rómantískasta uppátækið?
Að klifra upp svalir hjá kærustu á Garði og sjá hana með öðrum í rúminu og þurfa síðan að ganga út á BSÍ í rigningu til að fá leigubíl heim.