Sláturbílarnir koma nú hver af öðrum í sláturhúsið með lömb af bæjum á Suðurlandi, sem eru að fara í slátrun. Nokkur þúsund lömbum er slátrað á dag. Sláturtíðin leggst vel í starfsfólk SS.
„Ég hugsa að þetta verið alveg frábær sláturtíð eins og síðustu sláturtíðir hafa verið, við erum allavega mjög spennt og hlökkum bara til. Við munum slátra á milli 103 og 104 þúsund fjár,“ segir Benedikt Benediktsson framleiðslustjóri SS. Hann segir vænleika lambanna fínan þennan fyrsta sláturdag.
Sláturfélaginu hefur gengið illa að ráða fólk í sláturtíðina þar sem allir virðast hafa meira en nóg að gera í öðrum störfum.
„Já, það var svolítið ströggl og hefur gengið svona upp og ofan en já, þetta er nú að hafast. Það er bara erfitt að fá fólk á þessum tímum, það er mikið að gera í ferðaþjónustunni og erfitt að fá fólk hér innanlands, þannig að við þurfum bara að leita annað,“ segir Benedikt.

Benedikt segir að sóttvarnir séu mjög strangar í sláturhúsinu.
„Já, já, það er bara það sama, húsið er lokað fyrir öllum utanaðkomandi og við verðum auðvitað að passa upp á allar sóttvarnir og vernda húsið.“
En hvað er skemmtilegast við sláturtíðina?
„Það er svo margt. Það er fullt af skemmtilegu fólki sem kemur til starfa hjá okkur og það er stemming í liðinu. Það er svo margt gaman, það færist mikið líf í húsið þessar vikur, sem sláturtíðin stendur yfir,“ segir Benedikt.