Fyrri útgáfa Parachutes nældi þeim í aukna hlustun og meira að segja sæti á vinsældarlistum íslenskra útvarpsstöðva. Samhliða laginu kom út myndband sem skotið var af hinum Rússneska Dimitry Litvinov. Lagið er kraftmikið, fjörugt og upplífgandi og er alveg tilvalið til að loka sumrinu og fara inn í haustið með bros á vör.

Textinn fjallar um þessa skrítnu daga sem við erum að upplifa síðustu misseri og hvernig manni geti liðið sem ókunnugum í slíkum aðstæðum, en einnig að lífið endist ekki að eilífu og beri því að taka ekki of alvarlega, og ekki gleyma að hafa gaman. Lagið er samið og Hljóðritað af Pale Moon (Árni Guðjónsson og Natalia Sushchenko) Hljóðblöndun var framin af Bjarna Þór Jenssyni Tónjöfnun var innt af Bassa Ólafssyni
Hljómsveitin kemur svo fram á Mercat de Musica tónlistarhátíðinni í bænum Vic í katalóníu dagana 15- 18 sept. En Mercat de Music er svo til kölluð „bransahátið“ en opin almenningi.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Fylgstu með Pale Moon á palemoonmusic.com