Dr. Gunni boðar yður mikinn fögnuð! Ritstjórn Albúmm.is skrifar 16. september 2021 18:31 Fyrir stuttu komu út stutt skífurnar Aumingi með bónuspoka og Ég er í vinnunni sem eru af væntanlegri LP plötu Dr. Gunna sem kemur út á Spotify þann 15. október og heitir Nei, ókei. Hægt er að nálgast stutt skífurnar á Spotify og Youtube. Platan kemur einnig út á vínyl síðar á árinu. Útgáfutónleikar Dr. Gunna í tilefni af útkomu Nei, ókei verða haldnir á rokkbúllunni Húrra þann 21. október nk. kl. 20 og er miðasala hafin á tix.is. Auk Dr. Gunna koma fram góðir gestir sem verða kynntir til leiks þegar nær dregur. Hafin er forsala á vínyl sem áætlað er að komi úr framleiðslu í nóvember. Forsalan fer einnig fram á tix.is. Þar er hægt að gera kostakaup á vínyl og miðum á útgáfutónleikana. Nei, ókei er 12 laga LP-plata, sú fyrsta með hljómsveitinni Dr. Gunni síðan prjál-útgáfan „Í sjoppu“ kom út 2015, og fyrsta alvöru platan síðan „Stóri hvellur“ kom út 2003. Platan kemur út í takmörkuðu magni á vínyl og er því mikilvægt að hafa hraðar hendur og forpanta til að ná í eintak! Auk Gunnars Hjálmarssonar skipa Guðmundur Birgir Halldórsson, Grímur Atlason og Kristján Freyr Halldórsson sveitina. Þegar vínyllinn kemur úr framleiðslu verður hann keyrður heim að dyrum (á rafmagnsbíl) kaupenda á höfuðborgarsvæðinu. Aðrir fá gripinn sendan á kostnað viðtakenda. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected]. Tónlist Mest lesið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Erfitt að njóta kynlífs í líkama sem við höfum lært að hata Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Páskaleg og fersk marengsbomba Lífið Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].
Tónlist Mest lesið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Erfitt að njóta kynlífs í líkama sem við höfum lært að hata Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Páskaleg og fersk marengsbomba Lífið Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið