GameTíví hefur boðað til boðsmóts í Warzone annað kvöld. Þar munu tólf lið keppa um fyrsta meistaratitill. Auk strákanna í Sandkassanum munu Rauðvín og klakar, Queens og Babe Patrol keppa, auk annarra.
Þættirnir Sandkassinn verða í dagskrá alla sunnudaga en þar fáum við að fylgjast með Benna og félögum hans prófa sig áfram í mismunandi tölvuleikjum, bæði gömlum og nýjum.
Horfa má á Sandkassann á Twitchrás GameTíví. Útsendingin hefst klukkan átta.