Áhorfendur geta fylgst með í gegnum Stöð 2 Esport og einnig hér á Vísi og Twitch.
Streymi Steinda og félaga, þeirra Digital Cuz, Óla Jó og MVPete, er stærsta íslenska leikjarstreymið landsins og stóðu þeir félagar fyrir flugeldasýningu öll fimmtudagskvöld í fyrravetur.
Eins árs afmæli
Kvöldið er tileinkað eins árs afmæli Rauðvíns og klaka en þættirnir hófu göngu sína fyrir einmitt ári síðan, 30. september 2020. Vegna þessa lofa þeir félagar óvenju miklu fjöri.
Steindi hvetur fólk til þess að ekki bara fylgjast með heldur einnig að taka þátt í umræðunni í spjallinu við útsendinguna á Twitch en þeir félagar spila í rauntíma.
Hægt er að horfa á beina útsendingu Stöðvar 2 Esport í spilaranum hér fyrir neðan.