Uppfært: Eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi varð hreyfing á jöfnunarþingsætum sem varð til þess að kynjahlutföll á nýju þingi riðluðust. Varð niðurstaðan sú að karlar eru enn í meirihluta, 33 á móti þrjátíu konum. Að ofan og neðan má því lesa upphaflegu fréttina.
Í Suðurkjördæmi eru fimm konur og fimm karlar, en í Suðvesturkjördæmi fjórar konur og níu karlar.
Í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur voru sextán konur kjörnar á þing og sex karlar. Í Reykjavíkurkjördæmi norður voru fjórir karlar og sjö konur, en í Reykjavíkurkjördæmi suður níu konur og tveir karlar.
Í Norðausturkjördæmi fimm konur og fimm karlar. Í Norðvesturkjördæmi voru þrjár konur kjörnar á þing og fimm karlar.
Konur í einstaka þingflokkum
Framsóknarflokkur: Ingibjörg Ólöf Ísaksen, Líneik Anna Sævardóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.

Viðreisn: Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, Hanna Katrín Friðriksdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Sjálfstæðisflokkur: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, , Guðrún Hafsteinsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Bryndís Haraldsdóttir.

Flokkur fólksins: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Miðflokkur: Engin.

Píratar: Halldóra Mogensen, Lenya Rún Taha Karim, Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

Samfylkingin: Helga Vala Helgadóttir, Kristrún Frostadóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Vinstri græn: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Jódís Skúladóttir, Katrín Jakobsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Hólmfríður Árnadóttir.