Magnús hefur gagnrýnt frágang kjörstjórnar í kjördæminu á kjörgögnum, sem virðist ekki í samræmi við lög, og furðar sig á ósamræmi sem kom fram í fjölda ógildra og auðra atkvæða milli fyrri talningar og endurtalningar.
Eftir endurtalninguna hliðruðust nokkur atkvæði til milli flokka sem komu af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta í öllum kjördæmum landsins nema Norðausturkjördæmi.
„Hvernig eiga kjósendur í þessu landi að treysta lýðræðislegu ferli þegar kjörgögn eru ekki innsigluð eftir talningu í morgun, umboðsmenn lista ekki látnir vita af endurtalningu atkvæða,“ spyr Magnús á Facebook-síðu sinni.
Hann segir að kjörgögnin hafi verið geymd óinnsigluð í opnum sal Hótels Borgar í Borgarnesi í 6 klukkustundir milli talninga á meðan fólk fór heim. Það hafi til dæmis verið gestir á hótelinu.
„Trúverðugleiki talningarinnar í Norðvesturkjördæmi er algjörlega farinn og þar með trúverðugleiki kosninganna sjálfra,“ segir hann.
„Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“
Innsigluðu kjörgögn ekki um leið
Í samtali við fréttastofu segir Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, að rétt sé að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð um leið. Hann vísar gagnrýninni þó á bug og telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við henni. Kjörgögnin hafi verið geymd inni í læstum sal á hótelinu.
„Þetta er bara alveg sama skipulag og hefur verið mjög lengi,“ segir hann.
En er þetta rétt, að þau hafi ekki verið innsigluð og skilin eftir?
„Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta. Menn ganga ekkert alveg frá þessu. Auðvitað væri það hægt, það væri náttúrulega hægt að klára þetta en þá væru menn að bara fram á miðjan dag og væru þá kannski ekkert búnir að sofa í tvo sólarhringa.“
Þannig að þetta er rétt hjá honum, en þú vísar því á bug að það sé eitthvað athugavert við þetta?
„Já, já. Eins og ég segi, þetta hefur bara tíðkast og er bara venjubundið. Það hafa aldrei verið nein vandamál í sambandi við þetta.“
Vísar til skýrra ákvæða kosningalaga
Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana.
Almennt sagði hún þó að kosningalög væru skýr um þetta efni, og vísaði sérstaklega til 104. greinar þeirra, sem tekur til þess hvað gera skuli að talningu atkvæða lokinni. Í annarri málsgrein ákvæðisins segir:
„Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“