Á annað þúsund skjálfta fundust á Reykjanesi í dag. Sá stærsti, að stærðinni 3,7, reið yfir í nótt, en einn sem var upp á 3,5, mældist um kl. 14 í dag.
„Þessi virkni er enn á meira en 5 km dýpi og ef þetta er kvika, liggur hún of djúpt til að við getum séð það með aflögunarmælingum. En við ætlum að fylgjast mjög vel með næstu dagana og sjá hvernig þetta fer,“ sagði Kristín.
Aðspurð hvort þessir skjálftar geti verið undanfari stærri skjálfta sagði hún að þessi hrina væri ólíkt staðbundnari þeirri sem var fyrir gosið í Geldingadölum. Virknin væri nú alveg nyrst í ganginum sem myndaðist í febrúar og mars.
„Það er auðvitað ekki óhugsandi að þarna geti orðið skjálftar og þarna geta skjálftar orðið allt að 6,5. Ég held að á meðan þessi virkni er í gangi megum við búast við því að finna svona einn og einn annað slagið, en við skulum vona að þeir verði ekki svona stórir, þó að auðvitað sé ekki sé hægt að útiloka það.“
Ef gosop myndi myndast á þessu svæði er viðbúið að íbúar í nágrenninu, í Vogum á Vatnsleysuströnd og norður af Hvassahrauni yrðu verulega vör við það, en Kristín segir stöðuna ekki komna á það stig að það þurfi að hafa áhyggjur af því. Íbúar hefðu reynslu af skjálftunum og ættu að muna hvernig ástandið var í aðdraganda gossins.
„En ef það fer að flæða eitthvað hraun þarna, þá mun það taka langan tíma og verður að vera ansi kröftugt gos til þess að það renni út að Reykjanesbraut. En við erum ekkert komin þangað ennþá.“