Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Þegar innsendingafresti fyrir Edduna árið 2021 lauk þann 11. febrúar síðastliðinn höfðu framleiðendur sent alls 146 verk inn í keppnina. Að auki voru 319 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar.
Gullregn með níu verðlaun
Að þessu sinni voru veitt verðlaun í 27 flokkum sem kosin voru af meðlimum ÍKSA. Sigurvegari kvöldsins var kvikmyndin Gullregn í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Hún hlaut alls níu verðlaun. Þar á meðal fyrir kvikmynd, handrit, og leikstjórn ársins. Þá var Sigrún Edda Björnsdóttir valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverki sitt í myndinni.
Ráðherrann hlaut flest verðlaun sjónvarpsþátta, þrenn talsins.
RAX Augnablik í framleiðslu Vísis og Stöðvar 2 var valinn menningarþáttur ársins.
Reynir Oddson kvikmyndagerðarmaður hlaut heiðursverðlaun fyrir brautryðjendastarf í þágu íslenskrar kvikmyndamenningar.
Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir sjónvarpsefni ársins, áhorfendaverðlaun sem voru valin í rafrænni kosningu. Þar sigraði þátturinn Steinda Con og tók Steinþór Hróar Steinþórsson við verðlaununum.
Hér að neðan er listi yfir verðlaunahafa Eddunnar árið 2021.
Barna- og unglingaefni ársins
- Stundin okkar
- Framleitt af RÚV
- Eva Rún Þorgeirsdóttir, Elvar Örn Egilsson og Ragnar Eyþórsson
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
- Kveikur
- Framleitt af RÚV
- Fréttastofa RÚV
Heimildarmynd ársins
- A Song Called Hate
- Framleitt af tattarrattatt
- Iain Forsyth, Jane Pollard, Skarphéðinn Guðmundsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Íþróttaefni ársins:
- Áskorun
- Framleitt af Sagafilm
- Tinna Jóhannsdóttir
Kvikmynd ársins
- Gullregn
- Framleitt af Mystery Productions
- Ragnar Bragason, Árni Filippusson og Davíð Óskar Ólafsson
Leikið sjónvarpsefni ársins
- Ráðherrann
- Framleitt af Sagafilm
- Hilmar Sigurðsson, Kjartan Þór Þórðarson og Anna Vigdís Gísladóttir
Mannlífsþáttur ársins
- Nýjasta tækni og vísindi
- Framleitt af RÚV og Task 4 media
- Eiríkur Ingi Böðvarsson
Menningarþáttur ársins
- RAX Augnablik
- Framleitt af Vísi og Stöð 2
- Jón Grétar Gissurarson
Skemmtiþáttur ársins
- Ari Eldjárn – Pardon My Icelandic
- Framleitt af Made in Iceland Films
- Ágúst Jakobsson og Ari Eldjárn
Stuttmynd ársins
- Já-fólkið
- Framleitt af CAOZ og Hólamói
- Arnar Gunnarsson og Gísli Darri Halldórsson
Brellur ársins
- Filmgate, Guðjón Jónsson, Árni Gestur Sigfússon
- fyrir Ísalög
Búningar ársins
- Helga Rós V. Hannam
- fyrir Gullregn
Gervi ársins
- Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
- fyrir Gullregn
Handrit ársins
- Ragnar Bragason
- fyrir Gullregn
Hljóð ársins
- Huldar Freyr Arnarson
- fyrir Brot
Klipping ársins
- Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Guðlaugur Andri Eyþórsson
- fyrir Brot
Kvikmyndataka ársins
- Árni Filippusson
- fyrir Gullregn
Leikari ársins í aðalhlutverki
- Ólafur Darri Ólafsson
- fyrir Ráðherrann
Leikkona ársins í aðalhlutverki
- Sigrún Edda Björnsdóttir
- fyrir Gullregn
Leikkona ársins í aukahlutverki
- Halldóra Geirharðsdóttir
- fyrir Gullregn
Leikari ársins í aukahlutverki
- Þorvaldur Davíð Kristjánsson
- fyrir Ráðherrann
Leikmynd ársins
- Heimir Sverrisson
- fyrir Gullregn
Leikstjórn ársins
- Ragnar Bragason
- fyrir Gullregn
Sjónvarpsmaður ársins
- Helgi Seljan
Tónlist ársins
- Högni Egilsson
- fyrir Þriðja pólinn
Upptöku- eða útsendingastjórn ársins
- Ágúst Jakobsson
- fyrir Ari Eldjárn - Pardon My Icelandic
Sjónvarpsefni ársins
- Steinda Con
- Stöð 2