Stöð 2 Sport
Upphitun fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins hefst klukkan 14:15, en útsending frá leiknum sjálfum hefst klukkan 14:50. Eins og áður segir eru það Skagamenn sem mæta Víkingum, en þeir síðarnefndu freista þess að vinna tvöfalt, á meðan að ÍA er að leita að langþráðum bikar.
Stöð 2 Sport 2
Tvær útsendingar verða í boði á Stöð 2 Sport 2 í dag. Klukkan 11:25 hefst útsending frá leik Fulham og QPR í ensku 1. deildinni og klukkan 18:35 er komið að Martin Hermannssyni og félögum hans í Valencia Basket, en þeir heimsækja Hereda San Burgos í spænska körfuboltanum.
Stöð 2 Sport 3
Djurgården og Kristianstad eigast við í sænsku úrvalsdeildinni klukkan 12:55.
Stöð 2 Sport 4
Afturelding tekur á móti Stjörnunni í Olís-deild kvenna klukkan 15:50, en bæði lið eru í leit að sínum fyrsta sigri.
Klukkan 18:30 verður sýnt frá Aramco Team Series - New York á LET mótaröðinni.
Stöð 2 Golf
Estrella Damm N.A. Andalucia Masters á Evrópumótaröðinni er á dagskrá klukkan 11:30 og The CJ Cup @ Summit á PGA mótaröðinni leiðir okkur inn í nóttina frá klukkan 21:00.
Stöð 2 eSport
Heimsmeistaramótið í League of Legends heldur áfram frá klukkan 11:00 í dag, en í dag verður B-riðill kláraður.