Að sögn The New York Times vinna starfsmenn Hvíta hússins nú að breytingum á fjárlagafrumvarpinu vegna andstöðu öldungadeildarþingmannsins Joe Manchin við það.
Manchin er miðjumaður sem er fulltrúi Vestur-Virginíufylkis en kolaiðnaður er ríkinu mikilvægur. Sökum lítils meirihluta Demókrata á þinginu þarf forsetinn stuðning hvers einasta Demókrata til að koma frumvörpum í gegnum þingið.
„Manchin hefur talað opinberlega um áhyggjur sínar af því að greiða einkafyrirtækjum peninga skattgreiðenda fyrir eitthvað sem þau eru að gera nú þegar,“ segir Sam Runyon, talsmaður Manchins, við Reuters.
„Hann heldur áfram stuðningi við baráttuna gegn loftslagsbreytingum á meðan hann ver sjálfstæði Bandaríkjanna í orkumálum og tryggir stöðugleika í orkumálum,“ bætir hann við.
Biden er í erfiðri stöðu
Auk Manchins hefur öldungardeildarþingmaðurinn Kyrsten Sinema mótmælt eyrnamerkingu Bidens á þremur og hálfri billjón (e. trillion) Bandaríkjadala til félags- og umhverfismála.
Biden þarf því að finna jafnvægi milli kostnaðar og aðgerða til þess að forðast klofning í Demókrataflokknum. Frjálslyndari þingmenn flokksins hafa farið fram á að forsetinn standi við kosningaloforð sín í umhverfismálum.
Biden hefur þegar stungið upp á því að lækka fjárframlög til málaflokksins úr þremur og hálfri billjón í tvær billjónir.