Fundur um loftslagsaðgerðir fyrirtækja undir yfirskriftinni Kapphlaup um kolefnishlutleysi fer fram á Grand Hótel Reykjavík í dag. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 14 og stendur til kl 16. Hægt er að fylgjast með í spilaranum hér fyrir neðan:
Kapphlaup að kolefnishlutleysi (e. Race to Zero) - er alþjóðlegt átak sem Sameinuðu þjóðirnar standa að meðal annarra. Markmið átaksins er að styðja fyrirtæki, borgir, fjárfesta og aðra til þess að tryggja sjálfbæra framtíð og fylkja liði til að ná fram samræmdum markmiðum um kolefnishlutleysi.
Breska sendiráðið á Íslandi stendur fyrir fundinum í dag í samstarfi við Bresk íslenska viðskiptaráðið, Reykjavíkurborg, Grænvang, Samtök Iðnaðarins og Festu – miðstöð um sjálfbærni.
Á fundinum verður fjallað um hvernig fyrirtæki geta auðveldlega unnið að því að ná fram kolefnishlutleysi í rekstri. Fundarstjóri er Sigríður Mogensen frá Samtökum iðnaðarins
Dagskrá fundarins:
Opnunarávarp - Dr. Bryony Mathew, sendiherra Bretlands á Íslandi
Loftslagsvegvísir atvinnulífsins – næstu skref að núllinu – Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs
The Together for Our Planet Business Climate Leaders’ Campaign – Catherine Westoby, Engagement lead BEIS, UK Ministry of Business (BEIS)
Styrkjum forskotið – Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu
Race to Zero – Carolina Passos, Design Management Director, MACE Group
Byggingariðnaður og loftslagsmarkmið – Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingaverkfræðingur, VSÓ
Reykjavík og áratugur aðgerða – Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Samantekt og lokaorð – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.