Royal Never Give Up, eða RNG, hafði smávægilega forystu fyrstu mínúturnar í fyrsta leik dagsins. Eftir um tuttugu mínútna leik fóru þeir hægt og bítandi að byggja ofan á þá forystu og unnu að lokum góðan sigur.
1-0:@RNG strike first! #Worlds2021 pic.twitter.com/KZMXx6EPdc
— LoL Esports (@lolesports) October 23, 2021
Liðsmenn Edward Gaming létu þó ekki slá sig út af laginu og í annarri viðureign liðanna tóku þeir afgerandi forystu snemma leiks. Þá forystu létu þeir aldrei af hendi og unnu að lokum nokkuð öruggan sigur eftir tæplega 28 mínútna leik.
Þriðji leikur dagsins bauð svo upp á ögn meiri spennu en leikur tvö. Edward Gaming náði þó ágætis forskoti, en liðsmenn RNG voru þó aldrei langt undan. Edward Gaming hélt þó forskoti sínu allan leikinn og í þetta sinn tók það þá 38 mínútur að brjóta RNG á bak aftur.
WHAT A GAME
— LoL Esports (@lolesports) October 23, 2021
Match point for @EDG_Edward! #Worlds2021 pic.twitter.com/vlOG7Wykr9
Pressan var öll á RNG í fjórða leik dagsins þar sem að tap myndi þýða það að þeir væru úr leik á Heimsmeistaramótinu. Liðsmenn RNG stigu upp og náðu góðu forskoti snemma leiks. Eftir tæplega hálftíma leik af League of Legends var sigurinn þeirra, og liðin því á leið í oddaleik um laust sæti í undanúrslitum.
Eftir nokkuð jafnar fyrstu 15 mínútur leiksins tóku liðsmenn Edward Gaming öll völd og rúmum 13 mínútum síðar var sæti þeirra í undanúrslitum tryggt með nokkuð öruggum sigri.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu Edward Gaming sem liðið kemst í undanúrslit Heimsmeistaramótsins, en liðið hefur fjórum sinnum dottið út í átta liða úrslitum. Þeir mæta annað hvort Gen.G eða Cloud9 í undanúrslitum næsta laugardag.
THE CURSE IS BROKEN:@EDG_Edward advance to the #Worlds2021 Semifinals! pic.twitter.com/7pua9OtCBz
— LoL Esports (@lolesports) October 23, 2021
Átta liða úrslitin halda áfram á morgun en þá er á dagskrá viðureign evrópska liðsins MAD Lions og ríkjandi heimsmeistara DWG KIA. Eins og áður verður hægt að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport frá klukkan 12:00.