Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16 í dag í Hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands og verður honum streymt, en hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan.
Í tilkynningu segir að fyrirlestraröðin, sem hófst fyrr í haust og sé samstarfsverkefni Alvotech, Háskóla Íslands og Vísindagarða Háskóla Íslands, beri yfirskriftina „Framtíð nýsköpunar“. Þar sé fjallað um tækifæri fyrir íslenskt samfélag sem felist í nýsköpun sem byggist á vísinda- og rannsóknastarfi á breiðum grundvelli.
Ætlunin nú sé að líta yfir sviðið innanlands og skoða hvaða ávinningur sé af samstarfi vísinda og iðnaðar í heilbrigðisvísindum.
„Sjónum verður beint að fyrirtækjum tengdum líftækni og lyfjaiðnaði sem sprottið hafa upp úr rannsóknum og hugmyndum innan Háskóla Íslands og hvernig samþætta má vísindastarf og nýsköpun innan háskóla í samstarfi við atvinnulíf. Einnig verður fjallað um nýsköpun og framlag til sjálfbærni innan fyrirtækja í líftæknilyfjaiðnaði.“
Hægt verður að fylgjast með útsendingu í spilaranum að neðan. Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16.
Opnunarávörp flytja þau Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Í framhaldinu taka við erindi og reynslusögur úr Háskóla Íslands og atvinnulífinu og m.a. fjallað um hvernig tengja má betur saman háskólastarf og atvinnulíf í þágu nýsköpunar.
Erindi flytja:
- Þorsteinn Loftsson, prófessor emeritus við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og annar stofnandi Oculis – „Er hægt að vera bæði í vísindum og iðnaði? Reynslusaga úr Háskóla Íslands“
- Aðalheiður Pálmadóttir, VP of Business Development hjá Controlant, og Erlingur Brynjúlfsson, CTO og einn stofnenda Controlant – „Frá HÍ út um allan heim”
- Einar Mäntylä, framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs – „Hugvitið í askana – er leiðin greið?“
- Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech – „Sjálfbær framtíð í líftækni á Íslandi“
Fundarstjóri er Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.