Þetta segir Guðbrandur Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning um árekstur hjólanna við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar klukkan 8:08 í morgun. Annar ökumannanna lést og hinn slasaðist alvarlega. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var það ökumaður rafhlaupahjólsins sem lést.
„Klukkan 08:08 fékk lögregla tilkynningu um umferðarslys þar sem rafhlaupahjól og vespa höfðu lent saman og orðið slys,“ segir Guðbrandur.
Óljóst hvort ekið hafi verið á göngustíg eða reiðhjólastíg
Að hans sögn er verið að kanna hvort vespan, eða léttbifhjólið eins og það kallast í regluverkinu, sé í öðrum eða fyrsta flokki slíkra ökutækja. Teljist það til annars flokks er hámarkshraði ökutækisins 45 km/klst en 25 km/klst sé það í fyrsta flokki. Aka má rafmagnsvespum á göngustígum komist þær ekki hraðar en 25 km/klst. Sé hraðinn meiri á að aka þeim á götunni.

„Ekki er alveg ljóst hér hvort það hafi verið á reiðhjólastígnum eða göngustígnum,“ segir Guðbrandur.
Hann segir alla anga málsins til skoðunar en sérstaklega sé það kannað hvort innsigli á hjólunum tveimur hafi verið rofin.
„Allir þræðir í málinu eru til skoðunar og málið til rannsóknar og það sem rannsakað er er hvort innsigli hafi verið rofin, bæði á rafmagnshlaupahjólinu og síðan á létta bifhjólinu. Þá er til skoðunar hvort létta bifhjólið sé í flokki eitt eða flokki tvö, með 25 km hámarkshraða eða 45 og hvort það hafi yfir höfuð mátt vera á gangstétt eða bara á vegi. Það er til skoðunar,“ segir Guðbrandur.
Voru báðir með viðeigandi hjálma
Báðir ökumennirnir hafi verið með viðeigandi öryggishjálma en þrátt fyrir það hlotið mjög alvarleg meiðsl.
„Annar er látinn og hinn mikið slasaður á gjörgæslu.“
Þetta er fyrsta sinn sem einstaklingur lætur lífið við akstur á rafmagnshlaupahjóli hér á landi.
„Jú, það er því miður. Það er eitthvað sem við höfum óttast að gæti komið upp miðað við mikla notkun og oft óvarfærnislega,“ segir Guðbrandur.

Hættulegar aðstæður skapist í myrkri og bleytu
Ökumenn rafhlaupahjóla fari flestir varlega og eftir reglum en of mörg dæmi séu um að ekki sé farið eftir reglum um slík ökutæki. Talsverð aukning hafi verið í tilkynningum um slys á fólki við akstur slíkra tækja.
„Þeim hefur farið fjölgandi og er sveiflukennt milli árstíða. Því miður er talsvert af slysum þar sem fólk hlýtur andlitsmeiðsl eða beinbrot en sem betur fer ekki mjög alvarlegt fyrr en nú. Þar af leiðandi getum við aldrei lagt á það nógu mikla áherslu að fólk fari eftir reglum og allir sýni varúð og varfærni,“ segir Guðbrandur.

Aðstæður í morgun hafi verið mjög slæmar, mikið myrkur og hálka vegna bleytu á gangstéttinni.
„Við höfum áhyggjum af öllum vegfarendum við slíkar aðstæður, sama hvers konar ökutæki það eru en ekki síður það sem við köllum óvarna vegfarendur sem sjást oft illa í myrkri og bleytu eins og var í morgun. Það er eins og malbikið gleypi stundum umhverfið við slíkar aðstæður. Þá eru götuljós og ökuljós gríðarlega mikilvæg.“