Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt þeim þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.
„Fáir hafa í seinni tíð breitt út fagnaðarerindi tungumáls okkar líkt og verðlaunhafi ársins, sem með höfundaverki sínu hefur ekki aðeins stuðlað að meira læsi þjóðarinnar með því að færa okkur Íslendingum spennandi bækur, heldur einnig orðið til þess að ryðja fleiri íslenskum höfundum braut með því að vekja athygli heimsins á íslenskum bókmenntum. Bækur Arnaldar hafa nú verið þýddar á rúmlega 40 tungumál og þær þýðingar eru afar mikilvæg brú fyrir okkar tungumál og menningu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra við afhendingu verðlaunanna.
Vera hlaut viðurkenningu fyrir Í ljósi sögunnar
Að tillögu ráðgjafanefndarinnar var einnig veitt viðurkenning í tilefni dagsins. Lilja veitti því Veru Illugadóttur dagskrárgerðarkonu á RÚV sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu. Var viðurkenningin veitt fyrir þætti Veru, Í ljósi sögunnar, sem njóta mikilla vinsælda.

„Með grípandi framsetningu söguefnis hverju sinni nær Vera eyrum hlustenda vítt og breitt um samfélagið. Hún segir sögur sínar á frjóu og fallegu máli og miðlar fróðleik sínum á tilgerðarlausan en áhrifaríkan hátt,“ sagði í greinargerð ráðgjanefndar Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar.
Ráðgjafanefnd Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar 2021 skipuðu Ingunn Ásdísardóttir, Haukur Ingvarsson og Katrín Olga Jóhannesdóttir.
Þessi hafa hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar:
- Vilborg Dagbjartsdóttir skáld og grunnskólakennari, 1996
- Gísli Jónsson menntaskólakennari, 1997
- Þórarinn Eldjárn rithöfundur, 1998
- Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, 1999
- Magnús Þór Jónsson, Megas, 2000
- Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, 2001
- Jón Böðvarsson, 2002
- Jón S. Guðmundsson, 2003
- Silja Aðalsteinsdóttir, 2004
- Guðrún Helgadóttir, 2005
- Njörður P. Njarðvík, 2006
- Sigurbjörn Einarsson, 2007
- Herdís Egilsdóttir, kennari, 2008
- Þorsteinn frá Hamri, rithöfundur og skáld, 2009
- Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri, 2010
- Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, 2011
- Hannes Pétursson rithöfundur, 2012
- Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarmaður, 2013
- Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur 2014
- Guðjón Friðriksson sagnfræðingur 2015
- Sigurður Pálsson skáld 2016
- Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, 2017
- Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, 2018
- Jón G. Friðjónsson prófessor, 2019
- Gerður Kristný, 2020
- Arnaldur Indriðason, 2021
Sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu hafa hlotið:
- Orðanefnd rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands, 1996
- Hið íslenska bókmenntafélag, 1997
- Blaðamannafélag Íslands, 1998
- Félag íslenskra leikskólakennara, 1998
- Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, 1999
- Mjólkursamsalan, 1999Stóra upplestrarkeppnin, 2000
- Dr. Richard N. Ringler, 2000
- Félag framhaldsskólanema, 2001
- Námsflokkar Reykjavíkur, 2001
- Íslensk plöntuheiti, rafræn útgáfa, 2002
- Með íslenskuna að vopni, hagyrðingakvöld Vopnfirðinga, 2002
- Lesbók Morgunblaðisins, 2003
- Spaugstofan, 2003
- Kvæðamannafélagið Iðunn, 2004
- Strandagaldur, 2004
- Lestrarmenning í Reykjanesbæ, 2005
- Bókaútgáfan Bjartur, 2005
- Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands, 2006
- Leikhópurinn Hugleikur, 2006
- Samtök kvenna af erlendum uppruna, 2007
- Fréttastofa Útvarps, 2007
- Landnámssetur Íslands í Borgarnesi, 2008
- Útvarpsleikhúsið, 2008
- Þórbergssetur á Hala í Suðursveit, 2009 ( http://www.thorbergur.is/)
- Baggalútur (www.baggalutur.is), 2009
- Möguleikhúsið 2010, (veffang: http://www.moguleikhusid.is/)
- Hljómsveitin Hjálmar 2010
- Hljómsveitin Stuðmenn, 2011
- Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði, 2012
- Máltæknisetur 2013 ( arnastofnun.is/is/maltaeknisetur )
- Ljóðaslamm Borgarbókasafns 2013 (www.borgarbokasafn.is)
- Vefnámskeiðið Icelandic Online 2014
- Lestrarhátíð í Bókmenntaborg 2014
- Bubbi Morthens tónlistarmaður 2015
- Ævar vísindamaður (Ævar Þór Benediktsson) 2016
- Gunnar Helgason, rithöfundur, 2017
- Verkefnið Skáld í skólum, 2018
- Reykjavíkurdætur, 2019
- Félag ljóðaunnenda á Austurlandi, 2020
- Vera Illugadóttir, 2021.