Alþingi kaus sömu níu fulltrúana og sátu í undirbúningskjörbréfanefndinni til setu í hinni formlegu kjörbréfanefnd sem kom saman strax að loknum þingfundi í dag. Að honum loknum var greinargerð nefndarinnar birt á vef Alþingis og undirrituð of öllum nema fulltrúa Pírata í nefndinni. Þótt atkvæði verði ekki greidd um kjörbréfin sem Landskjörstjórn gaf út að loknum kosningum virðist meirihuti hafa orðið til um niðurstöðu í nefndinni.
„Mér heyrist að það verði að minnsta kosti til meirihlutaálit. Svo á eftir að koma í ljós hvað minnihlutaálit verða mörg. Hvort þau verða eitt, tvö, þrjú eða fleiri,“ sagði Birgir Ármannsson, formaður nefndarinnar, í samtali við fréttastofu í dag.
Og meirihlutaálitið er að það beri að staðfesta þessi kjörbréf?
„Já.“
Undir þetta álit muni fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins skrifa og leggja til sem tillögu fyrir Alþingi.
„Ef það er ekkert sem við höfum getað dregið fram sem sýna að ætla megi að vilji kjósenda hafi ekki komið fram, sem við höfum ekki getað gert. Þannig að ég mun náttúrlega greiða atkvæði með því kjörbréf Landskjörstjórnar sem gefin voru út hinn 1. október síðast liðin verði gild,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nefndarmaður í kjörbréfanefnd.
Eftir ítarlega skoðun kjörgagna komast fulltrúar Framsóknarflokksins að sömu niðurstöðu.
„Mín skoðun er sú að þar hafi ekkert komið fram sem bendir til þess að að hafi verið átt við kjörgögnin á þessu tímabili sem leið frá því fundi var frestað og þangað til honum var framhaldið,“ segir Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknar og nefndarmaður í kjörbréfanefnd.
Kjósendur njóti vafans
Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar telja vafann hins vegar það mikinn í meðferð kjörgagna að kjósendur í Norðvesturkjördæmi eigi að njóta vafans.
„Og þar með þeirri tillögu að þessi kjörbréf sem um ræðir, sem eru kjörbréf þingmanna í Norðvesturkjördæmis og jöfnunarmanna verði ekki staðfest. Þá taka í rauninni kosningalögin við og setja okkur í það verkefni að horfast í augu við uppkosningu,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og nefndarmaður í kjörbréfanefnd.
Fulltrúi Samfylkingarinnar talaði á svipuðum nótum.
„Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi gæti ekki staðfest að kjörgagna hefði verið gætt með fullnægjandi hætti. Og í rauninni stöndum við enn þar að við vitum að þeirra var ekki gætt með fullnægjandi hætti. Það fer í bága við kosningalöggjöfina og gerir það að verkum að við getum ekki tekið öll þessi kjörbréf gild,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og kjörbréfanefndarmaður.
Fulltrúi Pírata vill ganga enn lengra og kjósa aftur á landinu öllu.
„Við höfum litið svo á að þetta sé einhvers konar kerfislægt vandamál. Þannig að það sé í rauninni nauðsynlegt að hafa kosningar á öllu landinu. Það er ekki nó að eitt kjördæmi geti ráðið svona úrslitum eins og það gerir núna,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og nefndarmaður.
Þá telur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar og áheyrnarfulltrúi í nefndinni, nokkuð ljóst að verulegir ágallar hafi verið á framkvæmd kosninganna: