Bók þessi er óður Ólafs til veiðinnar og náttúrunnar. Í henni má finna fyndnar og merkilegar sögur, frásagnir af baráttum við ótal fiska á fjölbreyttum slóðum og fróðleik um sjóbirtinga, urriða, bleikjur, laxa og ótal veiðisvæði.
„Ég er veiðisjúklingur. Ég hef lengi verið veiðisjúklingur. Að einhverju leyti væri hægt að tala um mig sem veiðifíkil. Veiðimennskan átti mig strax frá unga aldri. Ég varð heillaður af því að takast á við náttúruna á einn eða annan hátt. Það er ekki til magnaðri stund en að setja í kraftmikinn fisk og vera algjörlega einn á móti náttúrunni. Að togast á við hana án þess að segja orð. Veiðin hefur alla tíð gefið mér gleði enda er hún alltaf jákvæð,“ segir Ólafur.

Ólafur Tómas leggur mikið upp úr sagnfræði, kennslu, líffræði og öðru sem hann hefur áhuga á og er veiðibók eins og Dagbók urriða tilvalinn vettvangur fyrir slíkt.
„Maður lærir jú mest á því að reka sig á og það hef ég sannarlega gert. Til þess að sjá heildarmyndina þurfum við því fyrst að fara yfir öll mistökin og lærdóminn í kjölfarið. Allt á sér upphaf,“ segir Ólafur.