Íslenska olíuleitarfélagið Eykon Energy lagt niður Kristján Már Unnarsson skrifar 9. desember 2021 13:26 Bjartsýni ríkti á Reyðarfirði haustið 2015 þegar rannsóknarskipið Oceanic Challenger hélt á Drekasvæðið. Á bryggjunni hittust fulltrúar Eykons, CNOOC og Petoro, sem stóðu saman að einu sérleyfanna. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson. Eykon Energy ehf., það íslenska félag sem lengst stóð að olíuleit á Drekasvæðinu, er hætt starfsemi. Eigendur þess ákváðu í mars á þessu ári að slíta félaginu. „
Slitaferlinu er ekki formlega lokið, verður sennilega klárað fljótlega á nýju ári,“ segir Jónas Rafn Tómasson hjá KPMG-lögmönnum, sem annast slit félagsins fyrir hönd eigenda. Fram kom í fréttum á dögunum að í nýjum stjórnarsáttmála er að finna ákvæði um að ríkisstjórnin muni ekki gefa út leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Eykon var handhafi síðasta sérleyfisins en það leyfi afturkallaði Orkustofnun eftir að erlendir samstarfsaðilar Eykons ákváðu að hætta frekari leit í ársbyrjun 2018. Fyrstu tveimur sérleyfunum á Drekasvæðið var úthlutað í Ráðherrabústaðnum í janúar 2013. Guðni Jóhannesson orkumálastjóri í miðið. Við hlið hans sitja Steingrímur J Sigfússon atvinnumálaráðherra og Ola Borten Moe, olíumálaráðherra Noregs.Vísir Gunnlaugur Jónsson, sem var framkvæmdastjóri Eykons Energy, segir að engin starfsemi hafi verið í félaginu undanfarin ár. Menn hafi séð að engar líkur væru á því að olíuleit væri að fara í gang. Því hafi verið tekin sú ákvörðun að slíta félaginu og taka það út af fyrirtækjaskrá. Helstu eigendur Eykons voru, auk Gunnlaugs, þeir Heiðar Guðjónsson fjárfestir, núverandi forstjóri Sýnar, og norski olíujarðfræðingurinn Terje Hagevang. Meðal annarra hluthafa voru Verkfræðistofan Mannvit og Jón Einar Eyjólfsson, sonur Eyjólfs Konráðs Jónssonar, alþingismanns og ritstjóra, sem félagið var kennt við, en hann var oft kallaður Eykon. Sérleyfin sem íslenska ríkið gaf út til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu urðu þrjú talsins. Þau náðu inn á samvinnusvæði með Noregi vegna Jan Mayen-samnings ríkjanna.Grafík/Stöð 2 Eykon Energy ehf. var eitt þriggja íslenskra félaga sem áttu aðild að sérleyfum á Drekasvæðinu. Hin voru Íslenskt kolvetni ehf. og Kolvetni ehf. Það síðarnefnda rann síðan inn í Eykon, en sömu aðilar stóðu að mestu að báðum félögum, auk Jóns Helga Guðmundssonar í Byko. Íslenskt kolvetni ehf. var afskráð í ágústmánuði í fyrra. Meðal eigenda voru Olís og Verkís en helstu forsvarsmenn félagsins voru Eldur Ólafsson jarðfræðingur, Kristján Jóhannsson viðskiptafræðingur og Gísli Baldur Garðarsson lögmaður. Gunnlaugur Jónsson segir að örlög Eykons Energy hafi í raun ráðist eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu í ársbyrjun 2018 að skila inn sérleyfi sínu, en félögin voru samstarfsaðilar Eykons í olíuleitinni á Drekasvæðinu. Sú ákvörðun kom forsvarsmönnum Eykons mjög á óvart í ljósi jákvæðra upplýsinga sem borist höfðu af niðurstöðum bergmálsmælinga. Þriðja og síðasta sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu var úthlutað við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í janúar 2014. Frá vinstri eru varaforseti CNOOC, sendiherra Kína, orkumálastjóri, iðnaðarráðherra, stjórnarformaður Eykons og fulltrúi Petoro.Stöð 2/Einar Rannsóknargögnin þóttu raunar svo jákvæð að á fjárlögum norska ríkisins fyrir árið 2018 var gert ráð fyrir því að fjárveitingar til ríkisolíufélagsins Petoro til olíuleitar á Drekasvæðinu yrðu fjórfaldaðar. Viðbótinni var ætlað að standa straum af kostnaði við rannsóknarborun með borskipi. Gunnlaugur segir að sú skýring, sem samstarfsaðilar Eykons gáfu fyrir því að hætta, að þau hafi ekki talið fýsilegt að halda áfram á næsta stig með litlar líkur á arðbærum olíu- og gaslindum, hafi þýtt að vonlítið var að finna nýja samstarfsaðila. Orkustofnun áætlaði þegar sérleyfunum var skilað að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu væri kominn yfir fimm milljarða króna, þar af væru um fimmhundruð milljónir króna leyfisgjöld til ríkisins. Hlutur íslensku félaganna í leyfunum var á bilinu 7,5 til 18,75 prósent. Vísir er í eigu Sýnar. Frétt Stöðvar 2 af ákvörðun stjórnarflokkanna um stöðvun olíuleitar má sjá hér: Sagt var frá siglingu fyrsta rannsóknarskips sérleyfishafa á Drekasvæðið í þessari frétt haustið 2015:
Bensín og olía Orkumál Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út. 29. nóvember 2021 22:20 Pólitíska ákvörðun þarf til nýs olíuleitarútboðs Ekkert leyfi til olíuleitar er lengur í gildi í lögsögu Íslands eftir að Eykon hætti við að kæra afturköllun sérleyfis fyrirtækisins á Drekasvæðinu. 7. maí 2018 21:30 Afturkalla leyfi Eykon til olíuleitar á Drekasvæðinu Stofnunin telur fyrirtækið ekki hafa tæknilega né fjárhagslega getu til að takast á við kröfur og skilyrði leyfisins. 7. mars 2018 15:35 Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00 Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. 26. janúar 2018 19:45 Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15 Mest lesið Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Viðskipti erlent Lækka það sem fæst hjá öðrum en hækka hitt Neytendur Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti gæti skapað áskoranir Viðskipti innlent Mátti ekki taka bjór úr hillum eftir allt saman Viðskipti innlent „Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Viðskipti innlent Tugmilljónakröfur í tómt þrotabú Viljans Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Halda jólin frítt með inneign í appinu Samstarf Domino's hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Neytendur Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mátti ekki taka bjór úr hillum eftir allt saman Tugmilljónakröfur í tómt þrotabú Viljans „Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Atvinnuleysi dróst saman milli mánaða Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti gæti skapað áskoranir Afgangur á viðskiptajöfnuði tæplega helmingi minni milli ára Níu teymi kynntu verkefni sín í Startup Tourism 2024 Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Gunnars loksins selt Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað 75 sagt upp í þremur hópuppsögnum Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Tryggja tólf milljarða króna fjármögnun Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Sjá meira
Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út. 29. nóvember 2021 22:20
Pólitíska ákvörðun þarf til nýs olíuleitarútboðs Ekkert leyfi til olíuleitar er lengur í gildi í lögsögu Íslands eftir að Eykon hætti við að kæra afturköllun sérleyfis fyrirtækisins á Drekasvæðinu. 7. maí 2018 21:30
Afturkalla leyfi Eykon til olíuleitar á Drekasvæðinu Stofnunin telur fyrirtækið ekki hafa tæknilega né fjárhagslega getu til að takast á við kröfur og skilyrði leyfisins. 7. mars 2018 15:35
Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00
Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. 26. janúar 2018 19:45
Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15