53 látnir eftir umferðarslys í Mexíkó Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 10. desember 2021 07:34 Hlúð að slösuðum. Á öðrum myndum má sjá raðir af látnum liggja á götunni. AP Að minnsta kosti 53 eru látnir og tugir slasaðir eftir að flutningabíll fór á hliðina í Mexíkó. Svo virðist sem bíllinn hafi verið að flytja ólöglega farendur frá Mið-Ameríku og væntanlega á leið til Bandaríkjanna.
Yfirvöld í Mexíkó segja að rúmlega hundrað manns hafi verið troðið inn í tengivagn bifreiðarinnar og virðist sem fjöldi þeirra hafi fallið út úr bílnum þegar slysið varð. Um eitt alvarlegasta umferðarslys í sögu Mexíkó er að ræða en slasaðir eru sagðir vera 58, sumir mjög alvarlega. Á meðal hinna látnu eru menn, konur og börn. Þjóðerni þeirra hefur ekki verið staðfest en lögreglumenn á staðnum segja að fólkið sé flest frá Hondúras og Guatemala. Vitni að slysinu segja að trukkurinn hafi verið á mikilli ferð þegar hann fór á hliðina í skarpri beygju á veginum og rann á göngubrú. Slysið varð í Chiapas ríki, sem er við landamærin að Gvatemala. Hundruð þúsunda manna fara þessa leið frá Mið-Ameríku á hverju ári með þá von í brjósti að komast til Bandaríkjanna.
Mexíkó Flóttamenn Hondúras Gvatemala Mest lesið Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira