Stefnt er að því að opna skíðasvæðið klukkan 16 á föstudaginn auk þess sem að opið verður um helgina frá 10-16 en nálgast má upplýsingar um opnunartíma næstu vikna hér. Staðan í fjallinu er ágæt að sögn Brynjars Helga Ásgeirssonar, forstöðumanns skíðasvæðisins.
„Við erum með nægilegan snjó til þess að opna. Það er hitaspá í kortunum en okkur hefur fundist hann vera minni en spár gefa til kynna. Á morgun á að vera mesti hitinn en svo er aftur kólnandi eftir það. Miðað við aðstæður lítur fjallið vel út,“ segir hann í samtali við Vísi.
Mikið framleitt af snjó
Starfsmenn fjallsins hafa staðið í ströngu að undanförnu við að framleiða snjó með snjóbyssum og er framleiddur snjór 90 prósent af þeim snjó sem er til staðar í tveimur af brekkum fjallsins að sögn Brynjars.
Þrátt fyrir að ekki hafi snjóað mikið á Akureyri í vetur hefur staðan verið öfug í fjallinu, ekki síst í september þegar snjóaði mikið. Þannig var gönguskíðabrautin í fjallinu opnuð um miðjan nóvember, sem telst vera í fyrra lagi. Að auki hefur verið hægt að halda úti skíðaæfingum fyrir krakka ofarlega í fjallinu frá sama tíma.
„Við höfum náð að halda í mikinn snjó sem kom þá og náð að byggja ofan á með framleiðslu,“ segir Brynjar sem finnur fyrir auknum áhuga á skíðaiðkun.
„Það er alltaf spenningur þegar við opnum. Skíðaiðkun á Íslandi hefur aukist gríðarlega. Það er mikill vöxtur í skíðagöngu og fjallaskíðum og á bretti líka.“
Möguleg sögulok á sögunni endalausu - Búið að styrkja stólana
Mikið hefur verið fjallað um nýja stólalyftu sem nær í um eitt þúsund metra hæð upp í fjallið. Upphaflega átti hún að vera tilbúin árið 2018 en tafir við framkvæmdir, Covid-19 og óhagstætt veður hefur gert það að verkum að enn á eftir að vígja hana.

„Í fyrra vorum við að bíða eftir veðurglugga til að vígja hana, það bara gekk ekki eftir. Við fengum engan veðurglugga til þess að opna hana. Svo var okkur gert að loka í dymbilvikunni og um páskana vegna Covid,“ segir Brynjar.
Skíðaiðkendur bundu því margir hverjir vonir við að lyftan kæmist í gagnið þegar skíðavertíðin hæfist nú í vetur. Greint var hins vegar frá því fyrr í vetur að einhverjar tafir myndu verða á opnuninni þar sem sterkir vindar í fjallinu hafi valdið skemmdum á stólunum í lyftunni.
„Það hafa verið skemmdir á stólum, það er búið að skipta þeim út og við erum að vona að við séum búin að ná fyrir fleiri skemmdir með því að setja styrkingar á þá,“ segir Brynjar.
Lýsingin það sem eftir stendur
Undanfarin ár hafa forverar Brynjars í starfi sagt að fljótlega verði lyftan opnuð án þess að það hafi gengið eftir. Brynjar segir hins vegar að í raun sé staðan núna þannig að það sé fátt sem standi í vegi fyrir því að lyftan fari að ganga.
Þannig segir hann að mögulegt sé að hún verði vígð núna í desember.
„Í rauninni er ekkert sem er útistandandi með að keyra lyftuna. Allur mekanískur búnaður virkar og allt slíkt. Við erum ekki að keyra hana fyrr en við erum sátt við að birtan er nægileg. Við stefnum á að reyna að vígja hana í desember. Ég held að það sé allur vilji fyrir því og svo verðum við vonandi með hana í gangi einhverjar helgar í janúar þegar margir eru í fjallinu, þegar þörfin er má segja.“
Varðandi lýsinguna nefnir Brynjar að ekki hafi tekist að setja upp lýsingu á sumar skíðaleiðir sem stefnt er að því að opna samhliða nýju lyftunni.
„Við munum bara keyra hana í björtu veðri svo við séum ekki að lenda í slysum. Ég held að við séum að sjá fyrir endann á því að lyftan sé ekki í notkun.“