Arsalan var tveggja mánaða þegar hann var skilinn eftir hjá ömmu sinni á flugvellinum í Kabúl - foreldrar hans voru færðir inn í flugvél og af stað. Hann varð eftir. Nú er hann sex mánaða gamall.
Faðir hans, Khairullah Yosufi, flaug fyrir nokkrum dögum á móti föruneytinu sem færði þeim son þeirra. Hann lýsti því í samtali við fréttastofu á flugvellinum að vegna fjarvistanna þekkti sonur hans hann ekki lengur. Það tók mjög á hann. Barnið grét og grét - en hægt og rólega kemur hann nú til.
Fréttastofa fylgdist með fagnaðarfundum á flugvellinum í morgun:
Zeba og Khairullah verja jólunum hér á landi með Arsalan í ró og næði, en þar sem Zeba hefur starfað fyrir alþjóðasamtök í Afganistan var henni og fjölskyldu hennar ekki vært þar lengur eftir að talíbanar tóku völdin.
Arsalan er jólabarnið í ár, eins og Irma Erlingsdóttir, forseti Jafnréttisskóla Háskóla Íslands, lýsti í samtali við mbl.is, en Irma hefur staðið fyrir komu fjölskyldunnar til landsins.
Foreldrarnir kunna Irmu og öðrum sem hafa lagt þeim lið bestu þakkir. Þau höfðu sannarlega þörf fyrir hjálp en þetta er á meðal lýsinga Zebu frá flugvellinum í sumar: „Við tókum son okkar með, en loftleysið og troðningurinn við flugstöðina var svo mikill að hann missti meðvitund. Við hlupum þá með hann inn í nærliggjandi hús þar sem hann fór smátt og smátt að hreyfa fingurna og sýna lífsmark.“
Fleiri flóttamenn komu til landsins með fluginu í morgun og fagnaðarfundir urðu með fjölskyldum sem hafa verið í sundur mánuðum saman. Við segjum nánar frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.