Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis sem óskaði í vikunni eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um það hvers vegna breytingar á reglum um sóttkví næðu ekki til þeirra sem hefðu aðeins fengið einn örvunarskammt í kjölfar bólusetningar með bóluefni Janssen.
Með breytingunum er einstaklingum sem eru þríbólusettir minnst fjórtán dögum áður en þeir eru útsettir fyrir smiti meðal annars heimilt að sækja vinnu, skóla og matvöruverslanir á meðan þeir eru í sóttkví. Margir þeir sem höfðu þegið einn örvunarskammt eftir að hafa hlotið grunnbólusetningu með Janssen undruðust að reglurnar næðu ekki til þeirra nema þeir hefðu einnig fengið þriðju sprautu.
Þrefalt líklegri til að smitast
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis segir að við gerð nýju reglnanna hafi verið ákveðið að fylgja nýjustu læknisfræðilegu þekkingu á Covid-19 og þeim bóluefnum sem notuð hafa verið gegn sjúkdómnum. Þannig sé tekið mið af því „hversu vel ætla megi að einstaklingar séu varðir gegn COVID-19 í reynd en ekki endilega hvort markaðsleyfi bóluefnisins miði grunnbólusetningu við einn eða tvo skammta,“ eins og segir í svarinu.
Við gerð þess ráðfærði heilbrigðisráðuneytið sig við sóttvarnalækni sem bendir meðal annars á að í ljós hafi komið, síðasta sumar þegar delta-afbrigðið tók yfir hér á landi, að smittíðni þeirra sem höfðu fengið einn skammt af Janssen væri þreföld miðað við smittíðni þeirra sem höfðu fengið tvo skammta af öðrum bóluefnum.
Allar rannsóknir nú bendi þá til þess að einn skammtur af Janssen veiti sambærilega vernd og einn skammtur af öðrum bóluefnum og að grunnbólusetning með Janssen og einn örvunarskammtur með öðru bóluefni verndi eins vel og tveir skammtar af öðrum efnum. Því ætti að líta á það sem grunnbólusetningu við gerð sóttvarnareglna í framtíðinni þrátt fyrir að markaðsleyfi Janssen geri ráð fyrir að einn skammtur veiti grunnbólusetningu.
Sóttvarnalæknir bendir á að einn skammtur af Janssen hafi virkað eins vel og til var ætlast gegn upprunalega afbrigði veirunnar en um leið og meira smitandi afbrigði hafi skotið upp kollinum hafi þetta misræmi komið fram.
Því virðist sem svo að allar fyrri hugmyndir um Janssen séu fyrir bí í augum heilbrigðisyfirvalda og ef þeir sem fengu upprunalega Janssen vilja sleppa við ströngustu sóttkvíarreglur verða þeir að fá sér þriðja skammtinn af bóluefni. Þeir geta átt von á að fá boð í hann frá janúarlokum.