Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra og staðgengills fjármálaráðherra um aðgerðirnar var samþykkt í ríkisstjórn í morgun og verður lagt fyrir þingflokka stjórnarflokkanna í dag. Aðgerðirnar eru til að styðja við veitingastaði sem gert hefur verið að loka vegna yfirstandandi sóttvarnaaðgerða.

„Þetta eru í raun styrkir fyrir aðila í veitingarekstri með vínveitingaleyfi sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna skerts opnunartíma,“ segir Þórdís Kolbrún.
Áður hafi verið miðað við að lágmarki 40 prósenta tekjufall en það verði fært niður í 20 prósent. Styrkirnir breytist eftir tekjufallinu allt frá 20 prósentum upp í 60 prósent og væru hugsaðir til greiðslu launa.
Þessar tilteknu aðgerðir kosta ríkissjóð umtalsverðar upphæðir.
„Það er eins og venjulega aðeins erfitt að meta umfangið. Þetta geta verið allt að þrír milljarðar. Mat ráðuneytisins er að það sé líklegra að vera í kringum einn og hálfur,“ segir Þórdís Kolbrún.
Styrkur geti ekki verið hærri en 500 þúsund krónur á hvert stöðugildi ef tekjufall væri frá 20 prósentum upp í sextíu prósent en 600 þúsund á hvert stöðugildi ef tekjufallið væri meira en 60 prósent. Hámarksstyrkur á hvert fyrirtæki geti ekki verið hærri en tíu til tólf milljónir króna.
Aðgerðirnar bætast við seinkun gjalddaga opinberra gjalda sem Alþingi samþykkti í gær. Að auki er hópur á vegum stjórnvalda að skoða hvort grípa þurfi til enn frekari aðgerða til stunings fyrirtækjum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjótnvöld einnig vera að skoða frekari styrki til ferðaþjónustuaðila og viðburðahaldara. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hafi sömuleiðis kynnt viðbótarframlög á fjórða hundruð milljónir króna í ýmsa sjóði vegna sviðslista og tónlistar.
Erum við þá að tala um tónlistarmenn, eins popptónlistarmenn og aðra sem hafa farið mjög illa út úr faraldrinum og ekki getað haldið tónleika í bráðum tvö ár flestir?
„Það er verið að hugsa um þennan hóp já. Það er verið að reyna að beina fjármunum í ólíka sjóði þannig að það gagnist sem flestum,“ segir Katrín Jakobsdóttir.