Lagið er að sjálfsögðu í anda núnda áratugarins með dass af nútíma twisti. Berndsen er einkar lunkinn lagasmiður og á auðvelt með að semja grípandi laglínur. Berndsen hefur komið víða við en um tíma var hann búsettur í Bergen í Noregi þar sem hann samdi talsvert mikið af Ambient tónlist.
En nóg um það. Nýja lagið er tær snilld og það er ekkert annað í stöðunni en að skella á play, hækka vel í græjunum og njóta!

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.