Frá þessu greinir í Fréttablaðinu í morgun og segir að allar líkur séu á að mál fulltrúanna fari fyrir dóm en þeir ákváðu að ráða sér lögmenn eftir að sektarboðið barst frá lögreglustjóranum á Vesturlandi.
Í blaðinu segir að það styttist í að ákærur í málinu verði gefnar út, en Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar, fékk hæstu sektargerðina, 250 þúsund krónur, en hinir meðlimir yfirkjörstjórnarinnar fengu sektargerð upp á 150 þúsund krónur. Byggir sektin á að lög um meðferð kjörgagna hafi við brotin.
Ingi segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi ekki greitt sektina og að það sama eigin væntanlega við um aðra fulltrúa í nefndinni. Hann segist ætla að taka því sem að höndum ber.
Í fyrri frétt Vísis segir að meðlimir nefndarinnar hafi vísað til þess að brot þurfi að vera framin af ásetningi til að teljast refsiverð og telji sig því í raun ekki hafa brotið af sér.
Á annan tug kæra barst vegna þingkosninganna í haust og hóf undirbúningskjörbréfanefnd rannsókn á talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í kjölfarið. Alþingi staðfesti svo í lok nóvember kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og var því ekki boðað til uppkosningar.