Haraldur er tæplega fimmtugur og hefur starfað sem flugmaður og ljósmyndari um árabil. Hann nýtur mikilla vinsælda í flugi yfir íslenskar náttúruperlur en hann rekur fyrirtækið Volcano Air Iceland. Haraldur er formaður AOPA, hagsmunafélags flugmanna og flugvélaeigenda á Íslandi, og ritstjóri Flugsins, tímarits um flugmál.
Erlendir miðlar hafa fjallað um leitaraðgerðirnar hér á landi. Fram kemur í frétt Washington Post að erlendu ferðamennirnir séu frá Bandaríkjunum, Hollandi og Belgíu.
Þakkaði fyrir stuðninginn fyrir hönd fjölskyldunnar
Ljósmyndarinn Chris Burkard, góður vinur Haraldar, greindi frá því í hringrás sinni á Instagram í gærkvöld að Haraldur væri flugmaðurinn sem er einn þeirra fjögurra sem leitað er að. Fjölskylda Haraldar hafi beðið hann að þakka fólki stuðninginn sem hún hafi fundið fyrir.
„Fjöldi flugmanna frá ýmsum félögum og vinir hans leita hans líka. Þetta sýnir ekki bara samheldni íslensku þjóðarinnar heldur líka hve elskaður Haraldur er,“ skrifar Burkard í færslunni.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti við fréttastofu í morgun að flugumferð yfir leitarsvæðinu hefði verið mikil bæði í gær og í dag. Þá var stór hópur flugmanna á tólfta tímanum að bíða eftir fyrirmælum frá ISAVIA og aðgerðarstjórn leitarinnar um hvort þeir gætu farið í loftið.
Flugsamfélagið leggst á eitt
Halldór Jónsson flugmaður auglýsti eftir flugmönnum, sem vildu aðstoða við leitina úr lofti á eigin flugvélum, á Facebook-hópi flugnörda. Fimmtán höfðu þegar óskað eftir að fá að aðstoða þegar fréttastofa hafði samband við hann.
„Það eru margir sem vilja komast að leita en bíða bara eftir því að komast í loftið,“ segir Halldór. „Ég er að reyna að stýra því að það séu ekki margir að fara og gera einhverja vitleysu heldur í samráði við yfirvöld.“
Halldór segir hvarfið mikið áfall fyrir flugsamfélagið.
„Það er það vissulega, þetta er frekar lítið samfélag og þekkjast allir mjög vel.“

Burkard, sem er er með tæplega fjórar milljónir fylgjenda á Instagram, hefur farið margoft með Haraldi í útsýnisflug og myndatökur.
„Fjölskyldan vill að allir viti að hún hefur ekki gefið upp von - og þú ættir ekki að gera það heldur. Þegar einhverjar fréttir berast verður þeim deilt,“ skrifar Burkard á Instagram.
Vinsæll á samfélagsmiðlum sem Volcano Pilot
Umfangsmikil leit hefur staðið yfir að Haraldi, samferðarmönnum hans og flugvél frá því að hún hvarf með öllum innanborðs rétt eftir hádegi í gær. Flugvélin lagði af stað frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 10:30 í gærmorgun og átti að vera í um tveggja tíma flugi en þegar hún skilaði sér ekki aftur á tilsettum tíma fóru viðvörunarbjöllur að hringja hjá viðbragðsaðilum.
Flugbloggið, þekktur fjölmiðill meðal flugáhugafólks hér á landi, fjallar um leitina að Haraldi og ferðamönnunum þremur. Haraldur er vel þekktur í flugheiminum og nýtur vinsælda á Instagram undir nafninu Volcano Pilot þar sem tugir þúsunda fylgja honum.
Leit hófst um klukkan tvö eftir hádegi í gær og hefur staðið yfir síðan. Á fimmta hundrað björgunarsveitarmenn frá landinu öllu eru nú við leit að flugvélinni og fjórmenningunum. Þá er þyrla Landhelgisgæslunnar við leit auk lögreglu.
Fylgst er grannt með gangi mála við leitina í Vaktinni á Vísi: