Mogbolu var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í júlí 2021. Á þeim tíma sem þá dómur féll sat hann í gæsluvarðhaldi grunaður um þriðju nauðgunina sem sögð var hafa átt sér stað nokkrum vikum fyrr.
Fram kom í dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir manninum að Mogbolu væri af nígerískum uppruna og hefði komið hingað til lands árið 2016.
Dregin niður í kjallara
Mogbulu kynntist konunni sem hann braut gegn á höfuðborgarsvæðinu úti á lífinu. Í dómi héraðsdóms kom fram að hún hefði endurtekið neitað honum um kynmök og á einum tímapunkti reynt að komast undan áður.
Mogbulu náði henni, dró hana niður í kjallara og hélt brotum sínum áfram.
Konan flúði íbúðina á hlaupum eftir að hann hafði lokið sér af. Fór hún á neyðarmóttöku þar sem hugað var að henni. Héraðsdómur mat framburð konunnar mun trúverðugri en mannsins sem sagði kynmök hafa verið stunduð með vilja beggja.
Síðari nauðgunin fyrir norðan
Síðara brotið átti sér stað í umdæmi Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í júlí 2020. Mogbolu og konan í því tilviki höfðu átt í samskiptum á samfélagsmiðlum áður en þau hittust og fóru í bíltúr.
Ók hún með honum á heimili þar sem tveir vinir hans voru. Þar hafði hann samræði við konuna án hennar samþykkis inni á baðherbergi. Konan sagðist hafa endurtekið neitað því að vilja stunda kynlíf en ekki verið á hana hlustað.
Karlmaðurinn vildi meina, líkt og í fyrra brotinu, að samfarirnar hefðu verið með vilja beggja.
Héraðsdómur Reykjaness mat framburð konunnar trúverðugan á meðan hið sama mætti ekki segja um frásögn mannsins.
Var hann í héraði dæmdur til að greiða fyrri konunni tvær milljónir í miskabætur en þeirri síðari 1,3 milljónir króna.
Dómurinn verður birtur á vef Landsréttar upp úr klukkan 15:30.