„Ég var mjög ánægður með stelpurnar mínar, við héldum athyglinni allan tímann. Snæfell gerði vel í byrjun að setja nokkra þrista sem gerði það að verkum að við þurftum að halda haus sem við gerðum,“ sagði Ívar Ásgrímsson í samtali við Vísi eftir leik.
Í öðrum leikhluta saxaði Snæfell forskot Breiðabliks niður í fimm stig en þá kom sextán stiga áhlaup Breiðabliks.
„Við fengum stopp varnarlega, það var komið þreytumerki í Snæfell og þristarnir hættu að fara ofan í. Þá gengum við á lagið og Michaela Kelly gerði það sem hún þurfti í leiknum og klikkaði ekki á skoti.“
„Þetta var góður sigur og er ég ánægður með karakterinn í liðinu að klára þennan leik með þessum hætti.“
Báðir leikirnir í undanúrslitum eru spilaðir í Smáranum líkt og úrslitaleikurinn í VÍS-bikarnum. Ívar fann þó ekki fyrir því að Breiðablik myndi græða á því þar sem Blikar byrjuðu fjórða leikhluta á að skjóta á eigin körfu.
„Við vorum útilið í leiknum og af gömlum vana sóttum við á vitlausa körfu í fjórða leikhluta en það var örugglega hápunktur leiksins,“ sagði Ívar Ásgrímsson að lokum.