Markmiðið hefur verið að halda hækkun hitastigs við 1,5 gráðu fyrir árið 2030, samkvæmt Parísarsáttmálanum svokallaða frá 2015. Vísindamenn segja það enn hægt en mjög svo erfitt.
Meðalhækkun hitastigs jarðarinnar mælist nú 1,1 gráða, borin saman við meðalhita fyrir iðnvæðingu.
Þessi hækkun hefur leitt til tíðari og kröftugri öfgaveðra og skógarelda, svo eitthvað sé nefnt.
Heimurinn þurfi að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og mun hraðar en talað hefur verið um hingað til. Þó talað hafi verið um losun þessar lofttegunda hafa markmiðin ekki náðst hingað til.
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur tíst nokkrum sinnum um skýrsluna í dag en hann hefur farið hörðum orðum um ráðamenn heimsins og forsvarsmenn iðnaðar. Hann segir þá hafa lofað einu en gert annað.
Þeir hafi logið og nú sé tíminn til að hætta að brenna plánetuna okkar. Í öðru tísti sagði Guterres að tóm loforð ráðamanna væru að gera jörðina óbyggilega.
The latest @IPCC_CH report is a litany of broken climate promises.
— António Guterres (@antonioguterres) April 4, 2022
Some government & business leaders are saying one thing, but doing another.
They are lying.
It is time to stop burning our planet. https://t.co/xzccxqwvhE
Í frétt AP fréttaveitunnar er vísað í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, þar sem fram kemur að áætlað sé að um 40 prósent þeirra gróðurhúsalofttegunda sem hafi borist í andrúmsloftið hafi komið frá Evrópu og Norður-Ameríku þar sem jarðeldsneyti hafa verið brennd lengst. Rúm tólf prósent megi rekja til Asíu en Kína varð ár fyrsta áratug þessarar aldar mesti mengunarvaldurinn.
Vísindamennirnir sem komu að skýrslunni segja bestu leiðina sem hægt sé að fara til að sporna við hlýnuninni sé að draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að nota sólar- og vindorku og aðra hreina orkugjafa og í senn styðja við bakið á fátækari ríkjum sem hafi ekki burði til að fara sjálf í orkuskipti. Einnig þurfi að draga úr neyslu kjöts.
AP hefur eftir Pete Smith, sem kom að skýrslunni, að heimurinn gæti ekki bara farið í megrun. Hann þyrfti að breyta alfarið um lífsstíl.