Ríkjandi meistarar hafa ekki tapað fyrsta leik í næstu úrslitakeppni síðan fyrir hrun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2022 15:04 Þórsara fagna hér í leik í vetur. Vísir/Bára Dröfn Það eru liðin fjórtán ár síðan að ríkjandi Íslandsmeistarar í körfubolta byrjuðu úrslitakeppnina ár eftir á tapi. Það gerðist síðast hjá KR-ingum vorið 2008. Íslandsmeistarar Þórs úr Þorlákshöfn hefja titilvörnina sína í kvöld þegar Grindavíkur kemur í heimsókn í Icelandic Glacial höllina. Frá hruni hafa allir Íslandsmeistarar byrjað næstu úrslitakeppni á sigri. KR var Íslandsmeistari frá 2007 þegar liðið tapaði með níu stiga mun á heimavelli, 76-85, í fyrsta leik átta liða úrslitanna á móti ÍR í átta liða úrslitunum 2008. Frá því að núverandi fyrirkomulag var tekið upp veturinn 1996-97 hefur aðeins eitt annað Íslandsmeistaralið tapað fyrsta leik í úrslitakeppni árið eftir en það voru Keflvíkingar vorið 2000. Bæði KR 2008 og Keflavík 2000 duttu út í átta liða úrslitum þessi ár þar sem titilvörnin byrjaði á tapi. Það hefur reyndar ekki munað miklu í síðustu tveimur úrslitakeppnum þar sem þá Íslandsmeistarar KR unnu aðeins eins stigs sigur bæði árin, fyrst 77-76 útisigur á Keflavík vorið 2019 og svo 99-98 útisigur á Val í fyrra. Leikur Þórs og Grindavíkur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsendingin klukkan 20.10. Strax á eftir verður síðan Subway Körfuboltakvöld þar sem gerðir verða upp leikirnir í fyrstu umferð átta liða úrslitanna.
Íslandsmeistarar Þórs úr Þorlákshöfn hefja titilvörnina sína í kvöld þegar Grindavíkur kemur í heimsókn í Icelandic Glacial höllina. Frá hruni hafa allir Íslandsmeistarar byrjað næstu úrslitakeppni á sigri. KR var Íslandsmeistari frá 2007 þegar liðið tapaði með níu stiga mun á heimavelli, 76-85, í fyrsta leik átta liða úrslitanna á móti ÍR í átta liða úrslitunum 2008. Frá því að núverandi fyrirkomulag var tekið upp veturinn 1996-97 hefur aðeins eitt annað Íslandsmeistaralið tapað fyrsta leik í úrslitakeppni árið eftir en það voru Keflvíkingar vorið 2000. Bæði KR 2008 og Keflavík 2000 duttu út í átta liða úrslitum þessi ár þar sem titilvörnin byrjaði á tapi. Það hefur reyndar ekki munað miklu í síðustu tveimur úrslitakeppnum þar sem þá Íslandsmeistarar KR unnu aðeins eins stigs sigur bæði árin, fyrst 77-76 útisigur á Keflavík vorið 2019 og svo 99-98 útisigur á Val í fyrra. Leikur Þórs og Grindavíkur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsendingin klukkan 20.10. Strax á eftir verður síðan Subway Körfuboltakvöld þar sem gerðir verða upp leikirnir í fyrstu umferð átta liða úrslitanna. Fyrsti leikur Íslandsmeistara í næstu úrslitakeppni á eftir: 2021 - KR: 1 stigs sigur á Val 2019 - KR: 1 stigs sigur á Keflavík 2018 - KR: 15 stiga sigur á Njarðvík 2017 - KR: 31 stigs sigur á Þór Ak. 2016 - KR: 18 stiga sigur á Grindavík 2015 - KR: 6 stiga sigur á Grindavík 2014 - Grindavík: 10 stiga sigur á Þór Þorl. 2013 - Grindavik: 17 stiga sigur á Skallagrími 2012 - KR: 16 stiga sigur á Tindastól 2011 - Snæfell: 9 stiga sigur á Haukum 2010 - KR: 17 stiga sigur á ÍR 2009 - Keflavík: 8 stiga sigur á Njarðvík 2008 - KR: 9 stiga tap fyrir ÍR
Fyrsti leikur Íslandsmeistara í næstu úrslitakeppni á eftir: 2021 - KR: 1 stigs sigur á Val 2019 - KR: 1 stigs sigur á Keflavík 2018 - KR: 15 stiga sigur á Njarðvík 2017 - KR: 31 stigs sigur á Þór Ak. 2016 - KR: 18 stiga sigur á Grindavík 2015 - KR: 6 stiga sigur á Grindavík 2014 - Grindavík: 10 stiga sigur á Þór Þorl. 2013 - Grindavik: 17 stiga sigur á Skallagrími 2012 - KR: 16 stiga sigur á Tindastól 2011 - Snæfell: 9 stiga sigur á Haukum 2010 - KR: 17 stiga sigur á ÍR 2009 - Keflavík: 8 stiga sigur á Njarðvík 2008 - KR: 9 stiga tap fyrir ÍR
Subway-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Selfoss jafnaði metin Handbolti Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Körfubolti Fleiri fréttir Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Sjá meira