Tveir úkraínskir listamenn sýna verk sín í galleríinu um þessar mundir, þeir Eliash Strongowsky og Yevgen Samborsky. Samkvæmt Alexander verða nýjar sýningar settar upp á tveggja vikna fresti og stefnt er að því að halda viðburði í kringum opnanir. Í maí á meðal annars að vera pop up súpu viðburður með úkraínskri borscht súpu. Á döfinni er einnig að skipuleggja listasmiðju fyrir úkraínsk börn á Íslandi.
„Þetta gallerí er í stöðugri þróun og við vonumst til að geta nýtt okkur það sem upplýsingahlið og aukinn sýnileika fyrir úkraínskt listafólk og heimamenn sem vilja styðja við Úkraínu,“ segir Alexander og bætir við að þau séu að vinna að því að finna góðgerðasamtök úti til að styðja við. Viðburðirnir hafa hingað til stutt við ýmis úkraínsk góðgerðasamtök þar sem mannréttindi og menning mætast á öflugan hátt. Listamenn sem hafa áhuga á að vera með á sýningum gallerísins er velkomið að sækja um í gegnum heimasíðu samtakanna hér.
Viðburðir í Bíó Paradís
ARTIST4UKRAINE eru með ýmislegt á döfinni og má þar á meðal nefna bíó sýningu annað kvöld í Bíó Paradís þar sem kvikmyndin Babushkas of Chernobyl verður sýnt í tilefni af því að 36 ár eru liðin frá hörmungunum í Chernobyl. Dagskráin hefst klukkan 19:00 og fyrir sýningu halda Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi, og Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, erindi og umræður tengdar kvikmyndinni. Nánari upplýsingar má finna hér.