Haukur er með 15 stiga forskot á Geir Evert Grímsson á Sleggjunni sem er í öðru sæti. Haukur er með 40 stig en 20 fást fyrir að vinna keppni. Geir er með 25 og í þriðja sæti er Sigurður Ingi Sigurðsson á Jiiibbííí með 20 stig.
Fyrri keppnin
Þórður Atli Guðnýjarson á Spaðanum varð annar í fyrstu keppni tímabilsins á meðan kempan Ingi Már Björnsson á Smiðju bombunni varð þriðji í sinni fyrstu keppni í um 20 ár, ef undanskilin er keppni á Hellu árið 2015, á 50 ára afmæliskeppni torfærunnar. Hann varð bikarmeistari árið 1997, á sínu öðru ári, aðeins 21 árs gamall. Hápunktur fyrri dagsins var áin, annað af einkennum Hellu keppninnar.
Tilþrifaverðlaun fyrstu umferðarinnar fóru til Svans Arnar Tómassonar á Insane.

Seinni keppnin
Annar í seinni keppninni varð Geir Evert annar á eftir Hauku Viðari. Jón Reynir Andrésson varð þriðji á Thunderbolt. Hápunktur seinni dagsins var mýrin sem er hinn hápunktur Hellu keppninnar.
Haukur viðar hlaut Hellubikarinn fyrir besta árangur helgarinnar. Heklan, sem Haukur ekur fékk í vor nýjan mótor, einhvern þann öflugasta sem sést hefur í íslenskri torfæru. Aðspurður hvort aflinu væri að þakka fyrir þennan glæsta árangur sagði Haukur að hann gæti með nýja mótornum „spilað meira á gjöfina og bætt í ef þurfti en ekki bara af eða á, ég fann það á vatninu að hann var ekki að bæta við sig hraða og í raunini er eftir á að hyggja algjör heppni að ná að klára keppnirnar með mótornum.“
„Ég mun fá lánaðan sama mótor og ég notaði í fyrra til að klára tímabilið. Hann er rúm 1100 hestöfl líka þannig ég hef ekkert miklar áhyggjur af aflinu, en hann er um 100 kg. þyngri en mótorinn sem ég notaði um helgina,“ bætti Haukur við.

Blaðamaður spurði hvort hann teldi líklegt að fleiri keppendur myndu sækja sér svona öflugan mótor og hvort það yrði í sumar eða á næsta tímabili svaraði Haukur því til að „Margir eru að koma með aðrar lausnir og að samsetning bíls og mótors hentar mér vel. Blásararnir sem Vestmannaeyjingarnir eru með eru áhugaverð hugmynd. Ég er kominn með þá reynslu að ég á að geta unnið þessa stráka og er búinn að sína að ég get keppt við þá. Ég skýt á að slagurinn verði á milli mín og Skúla [Kristjánssonar á Simba, ríkjandi Íslandsmeistara] og Þórs Þormars [á Raptor], en það má ekki gleyma Þórði Atla og Inga Má sem geta alveg blandað sér í baráttuna,“ hélt Haukur áfram.
Næsta keppni er í Hafnarfirði 21. maí næstkomandi. Þar lofaði Haukur skemmtun fyrir alla sem koma og horfa og hann ætlar að mæta tvíefldur til leiks. Svo eru tvær keppnir á Egilsstöðum 4., og 5. júní og svo á Akureyri 30. og 31. júlí, samkvæmt upplýsingum á vef AKÍS, Akstursíþróttasambands Íslands.