Valur hefur átt fulltrúa í öllum úrslitakeppnunum fjórum í handbolta og körfubolta og á einnig lið í fremstu röð í Bestu deildum karla og kvenna.
Lið félagsins hafa jafnvel verið að spila þrjá leiki á sama degi og mikið líf og fjör verið á Hlíðarenda, eins og til að mynda í gærkvöld þegar kvennaliðið í handbolta og karlaliðið í körfubolta spiluðu.
Vísitöluvalsfjölskylda gæti því hafa varið 134 þúsund krónum í miðakaup með því að mæta aðeins á heimaleiki Vals í apríl og maí, hjá liðunum sex sem félagið á í handbolta, körfubolta og fótbolta. Miði fyrir fullorðinn kostar í flestum tilvikum 2.000 krónur.

Ef útileikjunum í þessum tveimur mánuðum er bætt við hátt í tvöfaldast upphæðin og nemur 253.000 krónum hjá einni fjölskyldu, með tvo fullorðna og tvö börn. Fjölskyldan þyrfti þá að mæta á alla 55 leikina sem í boði voru og eru á 61 degi í apríl og maí.
Í þessari upphæð er þó gert ráð fyrir því að Valur komist í fimm leikja úrslitaeinvígi í Olís-deild kvenna í handbolta og að til oddaleikja komi í úrslitunum í Olís-deild karla, þar sem Valur mætir ÍBV, og í Subway-deild karla í körfubolta. Valskonur féllu út í undanúrslitum í Subway-deild kvenna en náðu þó að spila tvo heimaleiki.
Við bætist ferðakostnaður og kaup á veitingum
Í upphæðinni er hins vegar aðeins kostnaður við miða. Ekki er gert ráð fyrir ferðakostnaði en stuðningsmenn Vals fá til dæmis tvö tækifæri til að heimsækja Skagafjörð í þessum mánuði. Þá er heldur ekki gert ráð fyrir kostnaði við kalt öl í Fjósinu fyrir leik eða kaupum á hamborgurum og öðru sjoppufæði sem í boði er fyrir fjölskyldur á leikjum á Hlíðarenda og ætti að færa Val helling af krónum í kassann.

Aðeins dýrara á úrslitin í körfunni
Samkvæmt upplýsingum frá Val er miðaverð á leiki í flestum tilvikum 2.000 krónur og frítt fyrir börn 15 ára og yngri. Þó hefur kostað 2.500 krónur á leiki karlaliðsins í körfubolta sem freistar þess að vinna langþráðan Íslandsmeistaratitil, og 1.000 krónur fyrir börn.
Hér að neðan má sjá heimaleiki Vals á Hlíðarenda í apríl og maí, í handbolta, körfubolta og fótbolta. Mögulegt er að einn bikarleikur bætist við hjá kvennaliðinu í fótbolta.
Heimaleikir Vals í apríl og maí
Kvennalið Vals í handbolta:
- 3. apríl: Valur – Haukar, deildarleikur
- 14. apríl: Valur – KA/Þór, deildarleikur
- 6. maí: Valur – KA/Þór, undanúrslit
- 12. maí: Valur – KA/Þór, undanúrslit
- Einnig mögulega:
- 16. maí: Valur – KA/Þór, undanúrslit
- 23. maí: Valur – Fram, úrslit
- 29. maí: Valur – Fram, úrslit
Karlalið Vals í handbolta:
- 6. apríl: Valur – Haukar, deildarleikur
- 21. apríl: Valur – Fram, 8-liða úrslit
- 2. maí: Valur – Selfoss, undanúrslit
- 8. maí: Valur – Selfoss, undanúrslit
- 19. maí: Valur – ÍBV, úrslit
- 25. maí: Valur – ÍBV, úrslit
- Einnig mögulega:
- 30. maí: Valur – ÍBV, úrslit
Kvennalið Vals í körfubolta:
- 4. apríl: Valur – Haukar, undanúrslit
- 10. apríl: Valur – Haukar, undanúrslit
Karlalið Vals í körfubolta:
- 5. apríl: Valur – Stjarnan, 8-liða úrslit
- 11. apríl: Valur – Stjarnan, 8-liða úrslit
- 23. apríl: Valur – Þór Þ., undanúrslit
- 6. maí: Valur – Tindastóll, úrslit
- 12. maí: Valur – Tindastóll, úrslit
- Einnig mögulega:
- 18. maí: Valur – Tindastóll, úrslit
Kvennalið Vals í fótbolta:
- 26. apríl: Valur – Þróttur, deildarleikur
- 9. maí: Valur – Keflavík, deildarleikur
- 19. maí: Valur – KR, deildarleikur
Karlalið Vals í fótbolta:
- 19. apríl: Valur – ÍBV, deildarleikur
- 30. apríl: Valur – KR, deildarleikur
- 11. maí: Valur – ÍA, deildarleikur
- 22. maí: Valur – Víkingur, deildarleikur