Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir af því þegar rannsóknarmenn hossuðust í ókyrrð yfir Hvassahrauni. Það blés hressilega á Hólmsheiðinni í gærmorgun þegar þrjár smáflugvélar héldu þaðan á loft í þetta óvenjulega verkefni undir stjórn Gylfa Árnasonar, doktors í vélarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Gylfi flaug sjálfur einni vélinni eftir mismunandi ferlum allt að tíu kílómetra út frá miðpunkti hugsanlegs flugvallar í Hvassahrauni.
„Við erum búnir að fara circa fimmtíu sinnum að fljúga þarna til þess að mæla. Og eigum von á því að fara kannski þrjátíu sinnum í viðbót fram eftir sumri og hausti,“ segir Gylfi.

Um borð í flugvélunum eru tæki sem Háskólinn í Reykjavík smíðaði út frá hugmynd Þorgeirs Pálssonar, fyrrverandi flugmálastjóra, til að mæla ókyrrð. Veðurstofa Íslands er svo búin að koma upp veðurmöstrum á jörðu niðri en veðurþjónustan Belgingur kemur einnig að rannsókninni.
„Þeir sem hafa lent í niðurstreymi í flugvél, eða í flugkviku, eins og það er kallað, þeir vita að stundum er þetta óþægilegt og stundum hefur maður það á tilfinningunni að þetta sé jafnvel hættulegt. Það er það sem við erum að reyna að meta: Hvernig veðuraðstæður eru? Hvernig kvika kemur fram í svæðinu og hvernig það tengist síðan því sem möstrin eru að mæla.“
Verkefnið hófst í framhaldi af samningi samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar um að kanna hvort Hvassahraun henti undir flugvöll. Og við sáum ekki betur á myndum Ragnars Axelssonar en að flugvélin hristist heilmikið í stífri austanáttinni.
„Það er vissulega alveg ljóst að í vaxandi austanáttum og suðaustanáttum þá vex kvikan í þessu svæði. En hún gerir það reyndar líka í Reykjavík og víðar. En það er spurning hvort það er miklu meira þarna eða ekki.“

Gylfi rifjar upp rannsókn sem gerð var á flugvallarstæði í Kapelluhrauni fyrir meira en hálfri öld.
„Þar voru niðurstöðurnar þær að það væri erfitt að fljúga í svæðinu ef það væru 20 hnútar í lofti og ólendandi ef það færi yfir 30 hnúta.“
-En er Hvassahraun skárra svæði en Kapelluhraun?
„Ég þori ekki að segja það,“ svarar Gylfi Árnason.
Endanlegar niðurstöður veðurmælinganna eiga að liggja fyrir vorið 2023, eftir eitt ár. Þá verður væntanlega svarað spurningunni um hvort Hvassahraun reynist of hvasst.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: