Helga Hauksdóttir, sendiherra, opnaði sýninguna sem stendur til 15. september 2022. Fjórir íslenskir myndlistarmenn taka þátt, þau Georg Óskar, Hulda Vilhjálmsdóttir, Kristín Morthens og Steingrímur Gauti Ingólfsson.

Titill sýningarinnar Mens et Manus er á latínu og þýðir „hugur og hönd“. Með titlinum vísa sýningarstjórar í hugarheim myndlistarmannanna sem eiga það sameiginlegt að vinna út frá þeirra eigin tilfinningum, upplifunum og umhverfi þar sem sköpunarferlið sjálft, tilviljanir og hugskot leiða þau áfram í átt að lokaniðurstöðu, hver á sinn ólíka hátt.
Færa myndlistina nær fólki
„Markmið Listval frá upphafi hefur verið að færa myndlistina nær fólki og í þessu tilfelli almenningi í Kaupmannahöfn,“ segja þær Helga og Elísabet. „Við vorum búnar að vera í sambandi við Kristínu Kristjánsdóttur, sem er búsett í Kaupmannahöfn og sérhæfir sig meðal annars í menningarstjórnun, um hugsanlegt samstarf og hún átti svo frumkvæði af því að sýna í þessu fallega rými íslenska sendiráðsins í Kaupmannahöfn.“

Þær segja samstarfið rétt að byrja og að ýmislegt spennandi sé á döfinni.
„Kristín er nú okkar tengiliður þar og verkefnastjóri verkefnisins fyrir hönd Listvals. Rýmið sjálft hentar mjög vel fyrir sýningar og þangað koma Íslendingar í allskonar erindagjörðum. Sýningin blasir þannig við þeim sem leggja leið sína í sendiráðið en líka við þeim sem eiga leið hjá. Handan við hornið er matarmarkaður og ótal veitinga- og kaffihús. Það er því vel þess virði að gera sér ferð í þetta gamla hafnarsvæði í Kaupmannahöfn og heimsækja Norðurbryggju sem hýsir bæði sendiráð Íslands og sameiginlegt menningarsetur Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga.“

Mismunandi birtingarmyndir myndlistar
Með þessari sýningaröð segjast Helga og Elísabet ætla að leggja áherslu á fjölbreytileikan sem myndlistin býr yfir.
„Sýningin Mens et Manus er sú fyrsta í ákveðinni sýningaröð þar sem við ætlum að draga fram mismunandi birtingarmyndir myndlistar eftir til dæmis miðli, tækni eða efni. Á þessari sýningu var það ákveðin tækni sem að við vildum draga fram, eða ástand. Málaralist sem einkennist að sjálfsprottinni og óheftri tjáningu þar sem hugskot, minningar og innsæið er það sem stjórnar penslinum. Mens et Manus er latína og þýðir á íslensku „hugur og hönd“. Titill sýningarinnar vísar þannig í sköpunarferli myndlistarmannanna fjögurra og hugarheim þeirra. Augnablikið, ástandið og hughrifin leiða þau áfram í átt á að lokaniðurstöðu, hver á sinn ólíka hátt. Næsta sýning mun svo snúast um eitthvað allt annað. Allt opið en það er líka það skemmtilega við þetta verkefni, myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm.“

Sýningin er opin virka daga frá klukkan 9-16 og stendur sem áður segir til 15. september næstkomandi.






