Það er alveg ógleymanlegt að setja í stóra bleikju við bakka Þingvallavatns enda hagar hún sér allt öðru vísi á færi heldur en minni bleikjan. Fyrir það fyrsta er takan þung og ákveðin, svona yfirleitt, en baráttan, það er bara eithvað annað.
Stóra bleikjan tekur yfirleitt upp á því að leita í dýpið og þá hefst tog á milli veiðimanns og bleikju sem getur tekið á þann sem heldur á stönginni. Núna síðustu daga hafa nokkrir veiðimenn verið svo lánssamir að setja í slíkar bleikjur en þær stærstu sem veiðast í vatninu verða auðveldlega 6-7 pund og sumir hafa fullyrt að þeir hafi tekist á við stærri fiska en það.
Besta veiðin í vatninu er frá miðjum maí og fram til loka júlí en hápunkturinn er alltaf frá ca miðjum júní og inn í miðjan júlí. Núna er tíminn!