Inni á Facebook hópnum „Lúsmý á Íslandi“ má sjá fólk lýsa eigin raunum eftir lúsmýbit og leita ráða. Bitfjöldi sumra hleypur á hundruðum, en fólk viðist bregðast mis illa við þeim. Svo virðist sem fólk hafi verið bitið nokkuð í sumarhúsabyggðum á Suðurlandi og Vesturlandi. Til að mynda í Brekkuskógi, Húsafelli og rétt hjá Galtalæk.
Sigríður segir starfsfólk heilsugæslustöðva hafa orðið vart við fyrstu tilfelli bita fyrir um viku síðan og hafi fólk verið mest að leita svara á netspjalli Heilsuveru eða í apótekum. Aðspurð hvað sé það helsta sem heilsugæslan sé að ráðleggja gegn bitunum segir Sigríður mikilvægt að reyna að sofa með lokaðan glugga til þess að verja sig. Ef fólk sé nú þegar bitið sé mikilvægt að kæla bitin, til dæmis með kælikremi eða nota eftirbitskrem, og þá megi nota væga stera eða ofnæmistöflur. Hún segir þó best að grípa fyrst til kælingar.

Telur fólk vera búið að læra á þetta og taki bitunum af hugrekki
Aðspurð hvernig tilfelli séu að koma sérstaklega á heilsugæsluna segir hún fólk stundum koma þegar það sé illa bitið. „Þá fer fólk að vera hrætt um að það sé sýkt því þá er svo mikill roði og hiti og þá er kannski það sem fólk vill vera viss um að það sé ekki sýking í þessu, sem er mjög sjaldan.“
Sigríður segir að heilsugæslan hafi ekki fundið fyrir neinni aukningu í tilfellum miðað við árið áður. Hún telur að fólk sé búið að læra á þetta og taki bitunum af hugrekki, „það tekur þetta bara á kassann.“
Að lokum hvetur Sigríður fólk til þess að nota þau ráð sem séu til, allar upplýsingar um skordýrabit megi finna á Heilsuveru.