Það kemur engum sem þekkir Eystri Rangá á óvart að heyra að fyrsti laxinn komi á land úr Bátsvaðinu en það er einn neðsti veiðistaðurinn í ánni og líklega einn sá allra besti líka. Það var Alexander Árnason sem veiddi fyrsta lax sumarsins og var það 92 sm nýgengin fallegur hængur.
Sala veiðileyfa í Eystri Rangá hefur gengið mjög vel og er áin að verða svo til uppseld samkvæmt okkar heimildum. Það er mikill fjöldi erlendra veiðimanna sem sækja í að veiða þessa mögnuðu á og miðað við veiðivon þá er það heldur ekkert skrítið.