Leiðtogar Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Rúmeníu heimsóttu Kænugarð í gær þar sem þeir funduðu með Selenskí. Emmanuel Macron Frakklandsforseti lofaði Úkraínumönnum fleiri vopnasendingum og lofaði því að gera allt sem í hans valdi stæði til þess að tryggja að Úkraínumenn einir geti ákveðið framtíð sína.
„Ég og kollegar mínir erum hér í Kænugarði í dag með skýr skilaboð: Úkraína er hluti af evrópsku fjölskyldunni,“ sagði Olaf Scholz, kanslari Þýskalands á blaðamannafundi leiðtoganna í gær.
Úkraínsk yfirvöld hafa að undanförnu lýst miklum áhyggjum af dvínandi stuðningii Vesturveldanna. Heimsókn leiðtoganna fjögurra er því álitin mjög táknræn. Leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Ítalíu hafa þá allir verið gagnrýndir fyrir að halda samskiptaleiðum við Vladimír Pútín Rússlandsforseta opnum og að hafa ekki svarað kalli úkraínskra stjórnvalda um vopnasendingar.

„Í dag stöndum við Scholz kanslari hlið við hlið. Fyrir hundrað árum síðan háðum við stríð og bandamenn hjálpuðu Frakklandi að sigra. Frakkland gerði gífurleg mistök í því stríði. Það tapaði friði vegna þess að það vildi niðurlægja Þýskaland,“ sagði Macron á fundinum.
„Það verður að vinna þetta stríð og Frakkland stendur með Úkraínu. Hvorki Frakkland né Þýskaland munu aldrei reyna að semja um frið við Rússland fyrir hönd Úkraínu og það sem meira máli skiptir, þá höfum við aldrei gert það.“
Selenskí sagði í daglegu kvöldávarpi sínu í gær að það hafi verið honum mikilvægt að heyra að evrópskir leiðtogar væru sammála því að stríðslok og friður í Úkraínu kæmu til á forsendum Úkraínu sjálfrar. Þá bætti hann því við að Úkraínumenn muni halda áfram að berjast fyrir allt landið sitt. Vísaði hann til þess að Úkraínumenn og sumir nágrannar þeirra hafa haft áhyggjur af því að Vesturveldin muni þrýsta á Úkraínu að sleppa tökunum af hluta af landsvæði sínu til þess eins að stríðið endi.