Þorsteinn er vanur því að hjóla langar vegalengdir en hann hefur til að mynda hjólað hringinn um landið. Hann sagði Vestfjarðahringinn hafa verið erfiðan viðfangs. Hringurinn er 755 kíllómetra langur og áætlaði hann að vera 12 daga á leiðinni. Þeir urðu færri.
Árið 2015 hjólaði Þorsteinn Snæfellshringinn og árið eftir hringinn í kringum landið. Þá safnaði hann til styrktar ADHD samtökunum.
Þorsteinn kom hjólandi inn á setninguna sem fór fram í Hjálmakletti í fullum hjólagalla í gær og vakti gríðarlega athygli.

Allt gott að frétta úr Borgarnesi
Annar er allt gott að frétta úr Borgarnesi þar sem Landsmót UMFÍ 50+ er haldið um helgina, að sögn Jóns Aðalsteins Bergsveinssonar, kynningarfulltrúa UMFÍ.
Þar er keppt í fjölda greina fyrir fimmtíu ára og eldri. Jafnframt er líka opið í greinar fyrir þátttakendur á öllum aldri. Mótið hófst með fjölmennri keppni í boccía á föstudag, skák, ringó og götuhlaupi sem allir sem vildu gátu tekið þátt. Í dag hófst dagurinn með keppni í bridge, sundi og heldur svo áfram með keppni í frjálsum, golfi, knattspyrnu og fleiri greinum. Mótinu líkur á morgun.
Guðni Th. Jóhannesson var gestur við setningu mótsins og hélt þar áhrifamikið ávarp um mikilvægi lýðheilsu.

„Við erum í vanda við Íslendingar. Við þurfum að huga að heilsu okkar. Heilbrigðiskerfið nær ekki að ná utan um alla. Við leysum þennan vanda aldrei með því að byggja fleiri álmur og fleiri spítala. Við verðum að huga að forvirkum aðgerðum. Það er margsannað að því fé sem varið er til forvirkra aðgerða af þessu tagi skilar sér margfalt til baka,“ sagði hann.
Þá sagðist hann njóta þess mjög að fara út að hlaupa þótt hann viti að hann muni ekki ná sama tíma í almenningshlaupum og þegar hann var yngri.
„Um leið og ég er búinn að reima á mig skóna og lagður af stað þá finn ég gleðina yfir því að njóta hreyfingar. Þvílík forréttindi sem það eru að vera maður á miðjum aldir og kominn með smá bumbu, ég hreyft mig, ég get hlaupið og sprett úr spori. Þetta er ekki gefið,“ sagði forsetinn.