Andres Manuel Lopez Obrador, forseti Mexíkó, kennir mansali og „stjórnleysi á landamærum Bandaríkjanna“ um dauða flóttfólksins en aldrei hafa fleiri látist við landamæri Bandaríkjanna. Þeir látnu eru ýmist frá Mexíkó, Gvatemala og Hondúras en unnið er að því að greina þjóðerni allra látinna.
Þeir sem komust lífs af voru mjög heitir viðkomu og illa á sig komnir vegna ofþornunar og fluttir umsvifalaust á spítala. Þrír eru í haldi lögreglu vegna málsins.
Forsetinn, Lopez Obrador, kallar atvikið skelfilegan harmleik og heitir því að koma eftirlifendum aftur til síns heima. Þessi og fleiri dauðsföll flóttafólks séu afleiðing fátæktar og örvæntingar sem hefur gripið um sig í Mið-Ameríku. „Þetta gerist líka vegna mansals og stjórnleysis á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna en einnig stjórnleysis á innviðum Bandaríkjanna.“
Bandarísk yfirvöld sendu jafnframt frá sér yfirlýsingu og segja dauðsföllin harmþrungin.
Flóttafólkið fannst í útjaðri San Antonio borgar, sem er um 250 kílómetra frá landamærunum. Mansalsmenn eru sagðir nota vöruflutningabifreiðar til að ferja fólk eftir að það hefur komist yfir landamærin til Bandaríkjanna.