Á plötunni leitast Ari við að spegla hið íslenska í hinu alþjóðlega. Heyra má fimmundarsöng, harmonikku og sérstaka rafmagnaða útgáfu af hinu hefðbundna langspili, rafspil, í bland við fjölþjóðlega rytma, hálssöng, viðar flautur og brim skotinn gítarleik. Úr verður tónlist fyrir ókannaðar íslenskar eyðimerkur þar sem kynjaverur þrífast og mannskepnan með sín hugtök og kerfi er í upplausn.

Hugmyndin að plötunni fæddist með kaffibolla í Bláa Horninu í Þingholtunum. Ný malaðar kaffibaunirnar beint frá Níkaragúa bruggaðar með frussandi fersku íslensku vatni í stálheiðarlegri íslenskri sjoppu. Kosningar ný yfirstaðnar, þjóðernishyggjan, alþjóðavæðingin og svo var bognefur í Vatnsmýrinni.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.