Borgaryfirvöld segja að framgangur borgarlínuverkefnisins við Suðurlandsbraut hafi verið tryggður í dag þegar samningur náðist við Sumargjöf um afnot af lóð félagsins þar. Þar hefur jafnframt verið rekinn leikskólinn Steinahlíð síðan 1949.
„Það er talað um fimm þúsund fermetra og við fáum þá fimm þúsund fermetra í staðin bætt,“ segir Kristín Hagalín Ólafsdóttir formaður Barnavinafélagsins Sumargjafar.

Það sé ekki á borði Sumargjafar að ákveða hvaða land félagið láti af hendi eða hvaða land það fái í stað þess sem borgin fær til Borgarlínuverkefnisins.
„Það er ekki okkar að ákveða það, það er skipulagsyfirvalda og þeirra sem hafa með skipulag Borgarlínunnar að gera.“
Kristín segir að samningurinn feli líka í sér að borgin muni byggja nýjan leikskóla á lóðinni.
„Það er áhugi á því að fjölga börnum hér í Steinahlíð og ég geri ekki ráð fyrir að Sumargjöf muni reisa heimilið heldur þá að Reykjavíkurborg muni gera það,“ segir Kristín.
Hún segir að Sumargjöf ætli að efna til hönnunarsamkeppni um svæðið. Hún er ánægð með samninginn sem tókst við borgina í dag.
„Við höfðum áhyggjur á tímabili af því að það yrði bara eyðilagt hér landi okkar. En sem betur fer hefur komið í ljós að það gerist ekki. Við viljum raunverulega skapa hér unaðsreit í borginni fyrir börnin.“