Mbl.is birtir yfirlýsinguna á vef sínum þar sem segir að fjölskyldan biðji fyrir manninum sem liggi þungt hladinn á sjúkrahúsi eftir skotárásina. Þeirra von sé sú að hann nái heilsu.
„Frá fjölskyldu Brynjars Þórs
Sonur okkar og bróðir tók hræðilegar ákvarðanir sem urðu til þess að hann lét lífið, kunningjakona okkar einnig og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Við syrgjum bróður og son. Við getum ekki svarað fyrir gjörðir hans og hann ekki heldur. Við viljum biðja fjölmiðla að sýna okkur skilning og virða einkalíf okkar, og Brynjars.
Við biðjum fyrir því að Kári nái heilsu og sendum fjölskyldunni, vinum og öðrum sem eiga um sárt að binda innilegar samúðarkveðjur.
Við viljum biðja fjölmiðla um tillitsemi. Þrátt fyrir ákvarðanir Brynjars þá syrgjum við kæran son og bróður.
Með kveðju,
Foreldrar og systkini Brynjars“
Börn hjónanna sem urðu fyrir árás Brynjars sendu frá sér yfirlýsingu í morgun. Þar báðu þau fjölmiðla um að virða friðhelgi einkalífs með myndbirtingum og síendurteknum hringingum í þeirra nánustu.
Yfirlýsinguna má sjá að neðan.
Á sunnudaginn breyttist líf okkar til frambúðar og verður aldrei aftur eins. Við syrgjum móður okkar og faðir okkar er alvarlega særður á spítala. Okkur hafa borist hlýjar kveðjur og stuðningur úr öllum landshornum. Fyrir það erum við þakklát.
Það er erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegnum það sem við erum að upplifa núna. Það er enn þyngra þegar fjölmiðlar flytja rangar og villandi fréttir af atvikum og ganga nærri friðhelgi einkalífs okkar með myndbirtingum og síendurteknum hringingum í okkur, nánustu vini og ættingja.
Þess vegna viljum við góðfúslega biðja fjölmiðla um að virða friðhelgi einkalífs okkar, fjölskyldu og heimilis. Við þurfum frið til þess að takast á við þetta áfall, til að syrgja móður okkar og hlúa að föður okkar. Því í dag er ekkert mikilvægara en að hann nái heilsu á ný.
Allt sem við höfum að segja kemur fram hér að ofan. Við munum ekki tjá okkar frekar. Við ítrekum að við biðjum fjölmiðla að virða það.
Sandra, Hilmar, Pétur og Karen.
Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér stutta tilkynningu í gær þar sem hún sagði að rannsókn málsins miðaði vel. Þótt málið hafi komið upp í umdæmi Lögreglunnar á Norðurlandi vestra þá er rannsókn þess, lögum samkvæmt, í höndum embættisins sem hefur ekki svarað neinum spurningum fjölmiðla varðandi málið.
Ekki hefur náðst í Páleyju Bergþórsdóttur lögreglustjóra þrátt fyrir ítrekaðar og formlegar beiðnir þess efnis bæði í gær og í dag.