Viktor býr á Reyðarfirði ásamt kærustu sinni, Helgu Guðrúnu. Þau flugu til Reykjavíkur snemma í gærmorgun til að fara á tónleika með stórsöngvaranum Lewis Capaldi sem áttu að fara fram í Laugardalshöll í kvöld.
Um hádegisbilið í gær barst síðan tilkynning frá tónleikahaldaranum Reykjavík Live. Þar kom fram að fyrirtækið neyddist til þess að fresta tónleikunum „vegna vandamáls sem upp kom við framkvæmd fyrirhugaðara tónleika“.

Þegar tilkynningin barst var einungis rúmur sólarhringur í tónleikana og Viktor og Helga mætt til Reykjavíkur, búin að leigja bílaleigubíl og redda sumarfríi. Í samtali við fréttastofu segist Viktor áætla að þetta séu um hundrað þúsund krónur sem þau tapa á þessu.
„Svo vorum við beðin um að setja okkur í samband við þau en svörin sem við fengum þar voru mjög svipuð og svörin sem þau gáfu öllum. Að við ættum að bíða og sjá hvað þeir geti gert eftir að þeir tilkynna nýja dagsetningu,“ segir Viktor. „Þetta eru frekar loðin svör sem fólk er að fá frá þeim. Mér finnst það hljóma svolítið þannig eins og þeir vilji ekki segja hvað gerðist.“
Hann vill þó meina að þau séu heppin að hafa ekki tapað meiru en þau gátu fengið fría gistingu hjá vinum þeirra og eru með góða afslætti. Tjónið hefði því getað verið mun meira.
„Þetta er leiðinlegt en þetta er líka leiðinlegt fyrir tónleikahaldarana. Ég óska þeim hins besta og vonandi verður hægt að finna einhverja lausn á þessu. Vonandi græjast þetta allt saman og þessir tónleikar verða bara haldnir fyrr eða síðar,“ segir Viktor.