Björgvin Franz hefur leikið með leikfélaginu síðustu misseri. Hann lék Aðalstein álfakóng í söngleikinum Benedikt búálfur og Lárensíus sýslumann í verkinu um Skugga Svein. Það verður því spennandi að sjá hann takast á við hlutverk Billys. Þess má geta að faðir Björgvins, Gísli Rúnar Jónsson heitinn, þýddi söngleikinn Chicago.
Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, leikstýrir Chicago. Ásamt Björgvini Franz leikur Jóhanna Guðrún Velmu, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikur Roxý, Margrét Eir leikur fangelsisvörðinn og Arnþór Þórsteinsson leikur Amos.
Leiklistin í blóðinu
Björgvin Franz var í viðtali í hlaðvarpinu Jákastið á dögunum. Þar ræddi hann meðal annars um starfið sem skemmtikraftur, leiklistina, hjónabönd, vinasambönd og að vinna úr áföllum.
„Ég held að ég sé ekkert tilbúinn til að festa mig algjörlega einhvers staðar nema sú vinna gæti boðið upp á að ég væri að gera mjög fjölbreytt verkefni,“ sagði Björgvin meðal annars í viðtalinu en hann er yfirleitt með marga hatta á sér í einu og starfar meðal annars við sönginn, leiklistina, kennslu og sem skemmtikraftur svo eitthvað sé nefnt.
„Fæstir velja þetta, þetta er eitthvað sem velur þig. Ég vel ekki listina, þetta velur mig,“ útskýrir Björgvin í myndbandinu.
„Ég gat ekkert annað. Það er ekkert bara af því að ég ólst upp á heimili þar sem voru tveir leikarar“
Björgvin segir að hann hafi náð að búa til alvöru vinnu úr ástríðunni sinni.
„Eitthvað sem gleður, eitthvað sem kætir, eitthvað sem skilur fólk eftir í gleði. Það er svo rewarding.“
Viðtalið má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.