Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum en ákvörðunin var tekin af Ríkislögreglustjóra í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.
„Enn er fylgst vel með svæðinu með tilliti til aukinnar skjálftavirkni, óróa og landbreytinga. Búast má við innskotavirkni og jarðskjálftum á Reykjanesskaga á næstu misserum og er fólk því hvatt til þess að ganga vel frá innanstokksmunum til að koma í veg fyrir líkamsmeiðsl og tjón,“ segir í tilkynningunni.
Við gosstöðvarnar starfa nú landverðir sem tóku við eftir að björgunarsveitarfólk yfirgaf svæðið fyrir helgi. Landverðir muna sinna eftirliti með umferð og umgengni fólks en lögregla og björgunarsveitir koma til með að sinna útköllum og hjálparbeiðnum.
Almannavarnir minna á að enn er varhugavert að fara út á hraunið og að gígar og eldhraun njóti sérstakrar verndar samkvæmt ákvæðum náttúruverndarlaga.